154. löggjafarþing — 111. fundur,  14. maí 2024.

framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.

1095. mál
[14:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við Píratar lýsum ánægju með að þetta mál sé komið hingað í atkvæðagreiðslu og sérstaklega fagna ég þeirri þverpólitísku vinnu sem hefur farið fram. Það er mikilvægt að við gerum það í helst öllum málum. Við mættum láta okkur það að lærdómi verða að með því að vinna saman náum við breiðari sátt og við ættum að reyna að gera það á flestum sviðum. Við Píratar styðjum þetta mál að sjálfsögðu og vonum að það aðstoði Grindvíkinga í þeirra neyð.