Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég verð að nota tækifærið og þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir að vinna þetta mál vel og tek sérstaklega fram þakkir til formanns nefndarinnar, hv. þm. Bjarna Jónssonar, og hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar sem er framsögumaður málsins. Þetta er eitt af þremur sameiningarfrumvörpum sem komu inn í þingið í haust og er afskaplega mikilvægt að klára. Við höfum lengi talað fyrir því að það sé mjög skynsamlegt að sameina stofnanir. Ég held að allir séu sammála um að það að hafa 165 opinberar stofnanir í okkar litla þjóðfélagi er óskynsamlegt og óskilvirkt og við erum hvorki að nýta mannauð né fjármagn með eins góðum hætti og mögulegt er. En hér hefur hv. nefnd klárað frumvarpið og ég er ánægður með þær breytingar sem þar eru. Vil ég nota tækifærið aftur og þakka nefndarmönnum og þingmönnum fyrir vel unnin störf.