154. löggjafarþing — 111. fundur,  14. maí 2024.

Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur.

479. mál
[14:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Mig langaði rétt að koma upp. Það er búin að vera töluverð vinna í vetur varðandi þetta frumvarp og við að leysa mál tengd því og öll nefndin er á málinu. Mig langar rétt að ítreka mikilvægi þess að Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn haldi stöðu sinni við Mývatn og rannsóknir þar og það starf haldi áfram að eflast. Það er mikil saga á bak við náttúrurannsóknastöðina, 50 ára gömul saga. Ég vildi rétt koma upp og ítreka það og ég held að það hafi verið samhljómur í nefndinni um það og að ítreka að Náttúrurannsóknastöð við Mývatn hafi sterka stoð í nýrri stofnun.