154. löggjafarþing — 111. fundur,  14. maí 2024.

heilbrigðisþjónusta.

728. mál
[14:54]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við erum að klára mál, skilgreiningarmál, fjarheilbrigðisþjónustu. Það lætur kannski ekki mikið yfir sér en í stóra samhenginu er mikilvægi þess jafnvel enn meira. Eigi okkur að auðnast að mæta sívaxandi eftirspurn með framboði og veita aukið aðgengi, ekki síst óháð búsetu, þá er þetta nauðsynlegur liður í þeirri vegferð og tímabær.

Ég gleðst því, virðulegi forseti, yfir samstöðu þingsins í þessu máli og vil þakka hv. framsögumanni, Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur, og hv. velferðarnefnd og er mjög sammála þeim áherslum sem koma fram í áliti velferðarnefndar.