heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Ég fagna þessu góða máli. Ég vil ég bara minna á að það að nota þá tækni sem við teljum sjálfsagða í dag — og erum núna að tryggja í lög réttindi fólks til ákveðinnar þjónustu — krefst ákveðinnar tækni sem er ekki aðgengileg öllum, einfaldlega af fjárhagsástæðum. Ég vil hvetja Alþingi og ríkisstjórnina til að vera meðvituð um að til þess að fólk geti nýtt sér þessi réttindi þá sé tekið mið af því í þeim viðmiðum sem við setjum um þá fjármuni sem fólk þarf til að nýta sér sín réttindi og lifa mannsæmandi lífi.