framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Það er komið að því að greiða atkvæði um þetta óvenjulega þingmál sem ég hef miklar væntingar um að sé til góðs, ekki bara fyrir Grindvíkinga heldur fyrir samfélagið allt. Rétt eins og með önnur mál sem hafa ratað hér á okkar borð á Alþingi þá hefur nefndin haldið vel utan um málið og þingið sameinast um það. Ég vil þakka hv. framsögumanni málsins fyrir utanumhaldið. Verkefnin sem þarna eru undir eru ekki öll fyrirséð. Þetta er því miður ekki síðasta þingmálið sem við komum til með að fjalla um sem lýtur að stöðunni í Grindavík. En þetta er mikilvægt skref í því skyni að skapa skilyrði til þess að skerpa á ábyrgð og hlutverki stjórnvalda um málefni Grindavíkur. Ég árétta þakkir til þingsins og hér fylgja góðar óskir til nýrrar framkvæmdanefndar og ekki síst til Grindvíkinga allra.