154. löggjafarþing — 112. fundur,  14. maí 2024.

landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

535. mál
[15:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og hér stendur snýr þetta að því að eigendastefna ríkisins um ríkisjarðir verði uppfærð með það að markmiði að landbúnaðarnotkun slíkra jarða sé í forgangi. Það er ekki talað um að það þurfi að skipuleggja þær ríkisjarðir sem til eru til frekari landbúnaðar heldur er bara verið að fjalla um þetta sé í forgangi. Það var ekki metið sérstaklega hvað þessi aðgerð myndi kosta en það er bara verið að horfa til þess að landbúnaðarnotkun og skipulag á ríkisjörðum verði virt sem slíkt.