landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Hæstv. forseti. Ég undirrita álit meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar með fyrirvara sem mig langar að gera örstutta grein fyrir hér. Hann varðar, eins og fram kom í máli framsögumanns, gerð landsskipulagsstefnu fyrir miðhálendið. Ég tel óljóst hvernig stefnumótunin eigi að stuðla að jafnvægi á milli ólíkra ferðamáta á miðhálendinu, eins og bent var á í nokkrum umsögnum, og heldur ekki ljóst hvernig hún eigi að koma í veg fyrir að samgönguframkvæmdir rýri gildi víðerna og upplifun ferðafólks á miðhálendi Íslands.
Það er kannski sérstaklega þetta seinna atriði sem veldur þessum fyrirvara mínum. Ég hef orðið vör við það í umfjöllun bæði hv. umhverfis- og samgöngunefndar og bara í almennri umræðu um skipulagsmál að fólk, hinn almenni leikmaður, líka kjörnir fulltrúar, túlkar auðvitað umfang samgönguframkvæmda oft út frá því hvernig það upplifir þær eða hvernig það metur þær. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að fara mjög varlega í nýjar samgönguframkvæmdir á miðhálendinu eða á svæðinu þar í kring og það þurfi alltaf að meta þær þannig að þær geri sem minnst rask og að markmiðið hljóti alltaf að vera verndun ósnortinna víðerna og verndun landslagsheilda, verndun upplifunarinnar sem ferðafólk sækist eftir á miðhálendi Íslands sem er eins og við öll vitum mjög mikilvæg auðlind og færir okkur miklar útflutningstekjur á hverju ári. Þetta er fyrirvarinn.
Að öðru leyti liggur fyrir að landsskipulagsstefna sú sem hér liggur fyrir, ný áætlun með aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028, hún bindur ekki hendur sveitarfélaganna. Þetta er stefnumótandi plagg, þó þannig að við skipulagsvinnu sína þurfa sveitarfélög að aðlaga sig að stefnumótuninni í landsskipulagsstefnunni og rökstyðja sig frá henni, ef þannig má að orði komast, ef aðalskipulag eða svæðisskipulag fellur ekki að stefnumótun landsskipulagsstefnunnar. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga og að sjálfsögðu er þetta ágætisstefna til að byggja á en það er mjög mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því að hún er ekki bindandi og tekur að því leyti ekki fram fyrir hendurnar á sveitarfélögunum og skipulagsvaldi þeirra.
Það er svo önnur umræða sem við tökum í betra tómi hvort þannig eigi því að vera fyrir komið en mér finnst mikilvægt af þessu tilefni að gera þennan fyrirvara varðandi skipulagsstefnu fyrir miðhálendið og þar þurfum við að ganga fram af mikilli vandvirkni og varúð og þurfum að bæta samgöngur með einhverjum hætti. Þá er ekki sama hvernig það er gert. Það ber alltaf að meta allar slíkar framkvæmdir náttúrunni til tekna af því að hér eru undir einhver mestu verðmæti ósnortinna víðerna sem finnast í heiminum og alveg örugglega í Evrópu eins og hv. þingmenn vita.