landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Mig langar rétt að koma inn á umræðu um landsskipulagsstefnu. Þeir ættu kannski ekki að koma á óvart, þessir helstu punktar sem þann sem hér stendur langar að koma inn á. Nú er það þannig að á Íslandi erum við ekki með eiginlega þjóðaröryggislöggjöf. Landsskipulagsstefna, sem var fyrst sett 2016, er kannski það sem kemst næst því að koma inn á þetta, þ.e. að tryggja þjóðhagslega mikilvæga innviði og það hafa verið tekin ákveðin skref í þá veru með því máli sem við ræðum hér. Ég vil bara koma með það hér að í næstu endurskoðun verði tekið enn frekar á málefnum sem snúa að þjóðhagslega mikilvægum innviðum sem varða þjóðaröryggi Íslands. Þar erum við náttúrlega að tala um raforkukerfin, fjarskiptakerfin, samgöngukerfin, fjármálakerfin og fjarskiptastrengina í hafi og þátt sem hefur kannski verið gert allt of lítið með, þ.e. þar sem strengirnir eru teknir á land. Þar þarf að tryggja betur og verja öryggi gagnvart strengjunum.
Eins og kemur fram í nefndarálitinu og hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, framsögumaður málsins, kom inn á hér áðan í sinni ræðu varðandi raforkuframleiðsluna, sem er náttúrlega bara hluti af þessu raforkukerfi, þá snýst þetta ekki bara um flutningskerfið heldur líka um orkuframleiðsluna og hvernig við tryggjum hana og þá sérstaklega ef við hugum að því að í orkuskiptunum ætlum við að raforkuvæða landið og taka þessi síðustu 20%. Það sem gerist í framhaldi af því er að þá verður íslenskt samfélag gríðarlega háð raforku. Við ætlum að leggja allt undir að treysta á raforku sem er framleidd innan lands og hætta að brenna olíu og bensíni sem við setjum á tankinn eða er brennt bara við hliðina á þar sem orkan er nýtt. Þetta er mikil breyting og ég held að það væri verjandi að það yrði tekið með í næstu endurskoðun á þessu máli og tekin frekari skref. Auðvitað gæti ég sagt að það ætti að ganga skrefinu lengra og móta þjóðaröryggislöggjöf sem myndi ná með öflugum hætti utan um öll þau svið sem ég taldi upp hér áðan og gæti síðan tekið enn frekar á öðrum þáttum eins og netöryggismálum og fjölþáttaógnum og vörnum landsins sem ættu að vera í slíkri löggjöf.
Í fyrri ræðu um landsskipulagsstefnuna í haust kom ég töluvert inn á þessi mál. Þarna skiptir t.d. 5G gríðarlegu máli og fjórða iðnbyltingin sem treystir raunverulega á 5G. Það hefur komið fram hér í þinginu á síðustu árum, mig minnir að það hafi verið sagt að 5G væri raunverulega taugakerfið í fjórðu iðnbyltingunni. Ég held að sú setning hafi verið notuð yfir það. Þá skiptir máli að í alla 5G-sendana vítt og breitt þarftu t.d. ljósleiðara. Það þarf því að tryggja að hægt sé að leggja ljósleiðarana með sem öruggustum hætti. Til þess að hægt sé að taka 5G í stofnvegakerfinu allt í kringum landið þá þarf að setja það mun þéttar en við þekkjum með núverandi farnetasendum, með mun meiri þéttleika. Svo þarf að leggja ljósleiðara að þessum sendum svo að þeir miklu gagnaflutningar sem fara um 5G geti orðið að veruleika.
Það mætti telja töluvert upp sem snýr að þessu en það verður þó að segjast að í þessari landsskipulagsstefnu sem hér er lögð fram hafi orðið töluverðar framfarir í málinu frá 2016 en það má klárlega gera enn betur. Við sjáum þetta t.d. í öðru máli sem tengist 5G og fjarskiptunum og símasambandi úti á stofnvegum landsins og þekkjum það í gegnum mál sem hafa verið rekin hér og rædd; með sölu á farsímatíðnum í mars í fyrra sem eiga síðan að fjármagna uppsetningu á sendum við stofnvegi landsins. Ég held að þetta séu 55, 60 staðir sem á enn þá eftir að fara í. Meðan við erum ekki með þjóðaröryggislöggjöf þá er það sem snýr að fjarskiptakerfunum að mínu mati veigamikill þáttur í landsskipulagsstefnu. Ég held a.m.k. að við öll sem búum úti á landi lítum orðið á farsímann okkar sem okkar helsta öryggistæki þegar við förum um. Það er því mikið öryggismál að þetta sé í lagi.
Mig langaði rétt að koma inn á stofnvegi á hálendinu og bundið slitlag á þeim. Í ræðu um landsskipulagsstefnuna í fyrri umræðu í haust kom ég aðeins inn á bundið slitlag á þessum vegum og orkuskiptin og rafmagnsbíla og slíka þætti. Eins og ég skil þá tækni eru þeir bílar almennt viðkvæmari fyrir hnjaski. Ég tel að þegar við förum í heildarorkuskipti verði það veigamikill þáttur að tryggja að slíkar bifreiðar geti farið um og t.d. er það stórt og mikið mál að tengja saman Norður- og Suðurland. Á síðustu árum hefur vaxið mjög áhugi beggja vegna, hjá sveitarfélögum, sveitarstjórnarmönnum og almenningi, á því að slík framkvæmd geti orðið.
Og svo er náttúrlega ferðamannastraumurinn sem er gríðarlega mikilvægur fyrir landsvæðin og landsbyggðina. Ef við ætlum að takast á um orkuskiptin og fara alla leið í þeim þá væntanlega ætlum við að raforkuvæða eða vetnisvæða eða hvar við endum en væntanlega verður rafmagnið a.m.k. það sem mun bera uppi orkuskiptin í bílunum á næstu árum. Þá skiptir máli aðgengi fyrir þá á ákveðnum leiðum. Ég er ekki endilega að tala um alla stofnvegi á hálendinu eða troðninga eða annað, ég er að tala um svona meginleiðir, að þar sé hægt að fara um á bílum, að það þurfi ekki bara að vera stærri jeppar eða trukkar sem geta farið um.
Bílaleigubílar í dag eru orðnir um 25.000 sem eru í skammtímaleigu og flytja ferðamennina um landið. Ef ferðamennirnir eiga að geta farið um og séð eitthvað af þessari náttúru — auðvitað er mjög mikilvægt að verja ósnortna náttúru á hálendinu, svo að það sé á hreinu. Það þarf varla að minnast á að auðvitað er það markmiðið líka. En það þjónar engum sérstökum tilgangi fyrir mig að hafa einhvern rykmökk á bak við bíl, eins og það sé eitthvert umhverfismál að hafa endilega malarveginn. Það er hægt að byggja og leggja vegi í landslaginu á hálendinu og gera það mjög smekklega. Síðan þarf náttúrulega að ákveða umferðarhraða og annað. Gott dæmi er t.d. vegurinn vestan við Dettifoss eða Jökulsá á Fjöllum. Hann hefur verið mjög vel lagður í landslagið og ef ég man rétt er 70 km hámarkshraði. Það gæti verið ákveðin fyrirmynd að því sem við erum að tala um á Kjalvegi, sem eru kannski þessar helstu hugmyndir sem maður hefur komið fram með enn sem komið er. En svo vitum við ekki með mögulega aðrar leiðir, eins og Sprengisand t.d. Það er hlutur sem væri áhugavert að taka líka inn í þetta.
Ég vildi rétt koma inn á þessa punkta og þá sérstaklega að það er mín skoðun og ég hef talað fyrir því mjög lengi — hér fór átak af stað fyrir tíu, 12 árum; Ísland allt árið. Þá kom ég strax með: Allt Ísland allt árið. Ef okkur á að takast að tala um ferðaþjónustu á öllu landinu, allt Ísland allt árið, þá gegna samgöngur gríðarlega miklu og mikilvægu hlutverki. Þótt ég hafi kannski ekki persónulega talað nema um mínar hugmyndir og við þingmenn sem hafa verið á sama máli um Kjalveg — það er kannski verið að tala um sjö, átta mánuði á ári en það hefur mikið að segja varðandi dreifingu á erlendum ferðamönnum vegna þess að þessir fjórir aðalmánuðir sem ganga þar út af, það er ekki endilega stærsti hluti ferðamanna sem kemur á því tímabili. Það þarf líka aðrar leiðir upp á dreifinguna. Þetta er bara hluti af þessu og ég vona að þetta samtal þróist.
Meginpunkturinn í þessari umræðu snýr að því sem ég kom inn á í byrjun ræðunnar, að á meðan við höfum ekki þjóðaröryggislöggjöf sem snýr að þessum mikilvægu þjóðhagslegu innviðum þá er þetta það plagg í stjórnsýslunni sem kemst kannski einna næst því að móta einhverja heildarsýn yfir þjóðhagslega mikilvæga innviði þó að við höfum náttúrlega séð þá breytingu hér í þinginu á síðustu örfáum árum að það sem snýr að þjóðhagslega mikilvægum innviðum er að koma víða inn í íslenskri löggjöf. Það sem við höfum verið að ræða í þinginu á síðustu árum er algerlega breytt frá því sem var bara fyrir fimm, sex, sjö árum. Það þurfti kannski ákveðna hluti til. Þegar við erum að tala um áfallaþol og viðnámsþrótt samfélagsins þurfti svolítið til það sem búið er að gerast í íslensku samfélagi síðustu fimm ár; áföll eins og Wow air, Covid-19 heimsfaraldur, stríð í Úkraínu og núna það síðasta, Grindavíkureldarnir. Við erum a.m.k. flest hér held ég farin að huga betur að mikilvægi þess að við gerum okkar allra besta til að bæta þetta áfallaþol og viðnámsþrótt samfélagsins til að takast á við hlutina. Þess vegna legg ég mikla áherslu á það og ég vil þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir góða umræðu í vetur um landsskipulagsstefnuna og hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur fyrir hennar framsögu og að taka þetta mál fyrir í vetur. Við sjáum að það eru ákveðnar viðbætur sem koma frá nefndinni við málið og vonandi höldum við áfram að efla málið og það sem snýr að landsskipulagsstefnu.
Þetta er kannski það helsta sem ég vil sjá í næstu endurskoðun. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.