154. löggjafarþing — 112. fundur,  14. maí 2024.

fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024.

929. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu sameiginlegrar bókunar um fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024.

Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og kemur fram í nefndaráliti.

Með tillögunni ályktar Alþingi að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd sameiginlega bókun um fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að bókunin, sem undirrituð var 18. desember 2023, feli í sér gagnkvæmar aðgangsheimildir til makrílveiða. Munu Ísland og Grænland veita allt að tveimur skipum aðgang að efnahagslögsögu hvors um sig til veiða á allt að tíu þúsund tonnum af makríl úr eigin aflamarki, svo fremi sem hvorugur aðili geri hlutasamning um stofninn. Verði annað hvort ríkið aðili að hlutasamningi er heimilt að segja bókuninni upp. Aðilar eru sammála um að líta á árið 2024 sem reynslutímabil og verður þörf á hugsanlegri endurskoðun metin í lok árs 2024 eða í byrjun árs 2025.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jón Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Ég vil í framhaldi af því að fara með nefndarálitið segja aðeins meira frá eigin brjósti um málið og fara aðeins yfir það í breiðara og líffræðilegra samhengi.

Miklar breytingar hafa orðið á undanförnum árum á vistkerfum á norðurslóðum vegna hnattrænnar hlýnunar, ekki síst í hafinu. Samsetning sjávardýra hefur breyst á einstökum hafsvæðum og lífsaga og farleiðir margra göngustofna breyst. Á það ekki síst við um margar nytjategundir, eins og makrílinn í þessu tilviki. Hann hefur breytt lífsháttum sínum og hefur sótt í auknum mæli í íslenska lögsögu. Á sama tíma hafa jafnvel aðrar tegundir hopað eða staða þeirra veikst. Slíkir nytjastofnar virða ekki landamæri eða efnahagslögsögu einstakra landa. Það er því afar mikilvægt að þjóðin eigi með sér gott samstarf um umgengni við og sjálfbæra nýtingu sameiginlegra nytjastofna. Samningur sem þessi er því þýðingarmikill.

Það er einnig mikilvægt að við stöndum á rétti okkar til réttmætrar hlutdeildar í nýtingu tegunda eins og makrílsins sem hafa gert sig heimakomnar síðustu ár í íslenskri lögsögu, enda hafa aðrar nytjategundir jafnvel hopað eða liðið fyrir þær breytingar. Það er sannarlega enn meira krefjandi í farsælu og réttlátu umhverfi samskipta og milliríkjasamninga að fást við sjálfbæra nýtingu slíkra göngustofna og afleiðingar vistkerfisbreytinga.