fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024.
Virðulegi forseti. Ég svo sem bara fagna því að fólk og hv. samþingmenn mínir komi því á framfæri að mál sem þessi skipti máli og við stöndum að sjálfsögðu saman að slíku. Ég rakti áðan, í þessum líffræðilega kafla mínum sem ég kom með frá eigin brjósti, hvað það skiptir miklu máli að við getum með farsælum hætti nýtt auðlindir í hafinu í kringum okkur og hversu krefjandi það er þegar þessar tegundir og göngustofnar virða engin landamæri þjóða í milli heldur fara hvert sem þeim finnst. Þá reynir á okkur enn frekar.