húsnæðisbætur.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016. Nefndarálit liggur frammi og vísast til þess en ég mun hér í ræðu minni stikla á aðalatriðum í því.
Í fyrsta lagi er með þessu frumvarpi lagt til að grunnfjárhæðir húsnæðisbóta taki til allt að sex heimilismanna í stað fjögurra. Í öðru lagi er lögð til sú breyting að grunnfjárhæð húsnæðisbóta til einstaklingsheimila hækki um 25% frá því sem nú gildir og aðrar grunnfjárhæðir hækki til samræmis við stuðla í a-lið 1. gr. frumvarpsins. Þá er lagt til að fjárhæð eignamarka hækki og verði 12.500.000 kr.
Frumvarpið er lagt fram sem liður í aðgerðum til stuðnings kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði sem undirritaðir voru 7. mars 2024 og er markmið þess að styðja við heimili á leigumarkaði undir þeim tekju- og eignamörkum sem frumvarpið mælir fyrir um. Þeim breytingum sem lagðar eru til er helst ætlað að styðja við fjölmennari fjölskyldur, en auk þess gera breytingar á frítekjumarki foreldrum ungmenna kleift að styðja við börn sín lengur þannig að þau geti búið lengur í foreldrahúsum, líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu.
Meiri hluti velferðarnefndar telur mikilvægt að auka ráðstöfunartekjur heimila og draga úr húsnæðiskostnaði leigjenda. Meiri hlutinn tekur undir markmið og efni frumvarpsins og telur brýnt að það verði að lögum. Við umfjöllun nefndarinnar var bent á að reglur sveitarfélaga kveði oft á um hámark samanlagðra húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings. Þær reglur geti haft áhrif á fjárhæð stuðnings samkvæmt frumvarpinu. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð, að æskilegt sé að sveitarfélög taki til skoðunar hvort breyta þurfi reglum um hámark samanlagðra húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðning svo að þær hækkanir sem lagðar eru til í frumvarpinu skili sér til þeirra sem fá greiddar húsnæðisbætur.
Herra forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Jóhann Páll Jóhannsson og Guðmundur Ingi Kristinsson. Þá er Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, einnig samþykkur áliti þessu.
Að lokum vil ég segja að hér er um brýnt mál að ræða sem tengist gerðum kjarasamningum og ég vona þess vegna að það fái skjótan og góðan framgang hér í þinginu.