húsnæðisbætur.
Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um kjarasamningsbundið mál, um hækkun á húsaleigubótum um 25% sem er mjög gott. Ég styð málið en ég ákvað að koma samt upp og gera smáathugasemdir sem ég tel mikilvægar. Það kom líka vel fram í nefndinni, við umræðu um þetta mál, að kerfið okkar sem við erum búin að byggja upp, sérstaklega almannatryggingakerfið sem er síðan auðvitað líka hluti af húsnæðisbótakerfinu — við erum með húsaleigubætur og svo sérstakar húsaleigubætur sem eru hugsaðar fyrir þá sem hafa það verst og þurfa mest á hjálp að halda. En það merkilega við það er að sveitarfélögin ráða sjálf hlutfallinu af þessum sérstöku húsaleigubótum og þar af leiðandi gilda rosalega mismunandi reglur um þær bætur hjá sveitarfélögunum og eru sennilega jafn mismunandi og þau eru mörg sem er auðvitað alveg skelfilegt. Það sem er kannski sorglegast við það er að ef, sem ég vona svo heitt og innilega að verði, sveitarfélögin taka sig ekki til og breyta hjá sér þeim reglum sem þau eru með og hækka þakið og sjá til þess að þessi hækkun skili sér til þeirra sem eru á þessum sérstöku húsaleigubótum — vegna þess að þetta er fólkið sem hefur það verst í okkar samfélagi, hefur lægstar tekjur, bæði í félagsbótakerfinu og í örorkubótakerfinu. Það væri mjög sorglegt ef það væri ekki gert vegna þess að þá skerðast þessar bætur. Þá er verst setta fólkið að fá minna. Ég furða mig á því að það skuli vera gerðir samningar á almennum vinnumarkaði, launasamningar, og það skuli ekki vera tryggt og gengið frá því algerlega, bara pottþétt, að engin hætta sé á því að samningar um þessa hækkun á húsaleigubótum geti skaðað einhvern. Allra síst á þetta að skaða þá sem eru verst settir í okkar samfélagi.
Síðan er annað sem er svolítið furðulegt í þessu samhengi og það er hvernig ríkisstjórnin ætlar í sjálfu sér að mismuna fólki vegna þess að þarna er um kjarabundna samninga að ræða og í þeim samningum voru þeim sem eru á lægstu launum tryggðar 23.750 kr. á mánuði en öryrkjar og eldri borgarar fá þetta ekki. Almenni launamaðurinn er búinn að fá þetta síðan 1. febrúar afturvirkt en eldri borgarar og öryrkjar fá ekki krónu. Það sem er kannski enn þá sorglegra í þessu dæmi er að það á ekki að láta eldri borgara og öryrkja fá krónu fyrr en um næstu áramót og þá á eins og vanalega að blöffa það niður með einhverjum hókus-pókus aðferðum þannig að þeir mega þakka fyrir að fá helminginn af því sem þeir ættu að fá. En á sama tíma kemur næsta hækkun frá launþegasamtökum upp á 23.750. Þá eru þessir aðilar búnir að fá þarna um 47.000 kr. hækkun á meðan öryrkjar og eldri borgarar eru eiginlega ekki búnir að fá neitt.
Þarna liggur gífurlegur mismunur. Við erum að tala um, eins og ég hef bent á, að þau sem eru á sérstöku húsaleigubótunum eru verst setta fólkið og það er ekki að fá þessa kauphækkun. Það gæti jafnvel lent í skerðingum. Þannig að ég spyr mig: Fyrir hverja er þetta? Er þetta eingöngu hugsað fyrir þá sem standa best að vígi, sem eru á launamarkaði, þá sem hafa það sæmilegt, en þeir sem eru verst settir eiga að sitja eftir? Og því miður ætlar ríkisstjórnin sér alls ekki á neinn hátt að hækka almannatryggingarnar um 23.750 á mánuði eins og almenni launamaðurinn er búinn að fá. Það er alveg komið á hreint. Það stendur skýrt að það eigi að spara 11, 12 milljarða. Og hvernig ætla þeir að fara að því? Jú, það er sú hækkun sem átti að koma með endurskoðun örorkukerfisins og hún á ekki að koma fyrr en 1. september 2025 og þá verður orðið lítið úr þeirri hækkun og fyrir þá sem áttu að fá minnstu hækkun verður ekki bara ekki neitt, heldur tap.
Samt er verið að mæla fyrir því, og ég styð það, að þeir sem eru þarna úti eigi skilið að fá 25% hækkun húsaleigubóta. Það á líka að sjá til þess að þessi hækkun skili sér inn í sérstöku húsaleigubæturnar og það á að breyta þökunum þannig að þær skerðist ekki. Ég trúi ekki öðru en sveitarfélögin, sem hafa þegar sagt það við gerð kjarasamninganna að þau muni sjá til þess að taka tillit til þeirra — þarna verða þau að taka tillit. Hvert og eitt sveitarfélag verður að sjá til þess og reikna það út að allar þessar hækkanir skili sér algjörlega 100% til þeirra sem eru á sérstökum húsaleigubótum.
Ég skora enn og aftur á ríkisstjórnina að sýna nú einu sinni lit. Ég er viss um að það væri hægt að koma því í gegnum þingið á einni nóttu, á einum degi, á klukkutíma að hækka almannatryggingaþega um 23.750 á mánuði afturvirkt frá 1. febrúar, alveg eins og launþegar hafa fengið, og tryggja þar af leiðandi að þeir sitji ekki eftir með minni upphæðir. Þarna erum við kannski að tala um einstaklinga sem eru að fá 10.000 kr. hækkun á mánuði á leiguna. En á sama tíma er sá einstaklingur, ef hann er á vinnumarkaði, að fá 15.000 kr. aukalega á mánuði eftir skatta. Það munar um minna. Það er þetta sem er alveg óþolandi, að þeir verst settu í okkar samfélagi skuli vera skildir eftir, þ.e. öryrkjar og eldri borgarar sem eru á strípuðum launum og ég tala nú ekki um þá sem verða fyrir enn einu skerðingarruglinu hjá þessari ríkisstjórn, búsetuskerðingum. Það eru þessar skerðingar út um allt og þar getum við líka tekið á húsaleigubótum.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en ég bara vona svo heitt og innilega að ríkisstjórnin breyti um skoðun og sjái til þess, ekki bara að öryrkjar og eldri borgarar fái 23.750 frá 1. febrúar afturvirkt heldur einnig strax um næstu áramót og þá einnig þá hækkun sem samkvæmt vísitölu hefur verið í gangi, þ.e. verðbólgan. Við megum ekki gleyma því að eldri borgarar og öryrkjar og þeir verst settu hafa setið eftir. Það vantar alveg 60, 70% ofan á þeirra laun vegna skerðinga undanfarinna ára og það væri nú gott ef ríkisstjórnin tæki sig einu sinni til og sýndi þann manndóm að láta þessa einstaklinga fá sömu hækkanir og voru á vinnumarkaði.
Svo má ekki gleyma því að núna á þessu tímabili er að koma inn það furðulega spil að eldri borgarar og öryrkjar, þeir sem eru með almannatryggingar, eru að fá orlofsuppbót og það er alltaf látið líta út eins og það sé eitthvað rosalega flott — nú fá allir orlofsuppbót. En því miður er það ekki svoleiðis. Eins og ég sagði í störfum þingsins í morgun eru skerðingarnar komnar í 100 milljarða í þessu kerfi og það er hellingur af eldri borgurum og öryrkjum sem fá ekki krónu í orlofsuppbót bara vegna þess eins — hugsið ykkur ofbeldið — bara vegna þess að þeir borguðu í lögþvingaðan eignaupptökuvarinn lífeyrissjóð. Hvernig er hægt að koma svona fram við einstaklinga bara fyrir það að fara að lögum? Á að refsa þeim fyrir það? Jú, þeir gera það á hverju einasta ári. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur gert það hvert einasta ár undanfarna áratugi að refsa fólki fyrir það eitt að fara að lögum. Það þarf að sparka í það. Þið fáið ekki orlofsuppbót, þið fáið ekki jólauppbót. Nei, það þarf að refsa ykkur fyrir að fá greitt úr lífeyrissjóði.