útgáfa bókar í tilefni 80 ára lýðveldisafmælis.
Frú forseti. Nú á að gefa þjóðinni afmælisgjöf í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli Íslendinga, Fjallkonan, þú ert móðir vor kær. Þetta var hugarfóstur fyrrverandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, og núverandi forsetaframbjóðanda, sem hafði skrifað formála við bókina eðli málsins samkvæmt. Ég kem hér upp í ljósi þeirra frétta sem við erum að fá hér, um að það sé raunverulega verið að fleygja 30.000 eintökum af bókinni, af því að hæstv. forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni þyki ekki við hæfi að Katrín Jakobsdóttir sé sú sem ritar formála bókarinnar heldur eigi það að vera forsætisráðherrann sjálfur.
Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvaða gjörningar sé hér er á ferðinni, hvort þetta sé raunverulega eins og ég er að lýsa því hér, hvort það hafi þá ekki komið til álita að forsetinn sjálfur skrifaði innganginn, formálann, eða hvort það sé hreinlega með í pakkanum að í hvert skipti sem við skiptum um forsætisráðherra þurfum við að kalla bókina inn eða rífa spássíu úr til þess að senda landsmönnum sem þegið hafa þessa gjöf — sem landsmenn greiða reyndar fyrir sjálfir — inngang, formála, frá nýjum forsætisráðherra.
Er það svo, hæstv. forsætisráðherra, að það sé talið eðlilegt að ganga svona um ríkissjóð og fjármuni almennings? Er það virkilega svo í vaxandi fátækt, þar sem við erum að horfa upp á raunverulega vaxandi fátækt, þrátt fyrir þá möntru að hér sé jöfnuður hvað mestur og kaupmáttur hvað bestur, að þetta séu skilaboðin sem við erum að senda út í samfélagið?