154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útgáfa bókar í tilefni 80 ára lýðveldisafmælis.

[10:41]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nú bara ítreka það að það er auðvitað mjög miður að af þessu hljótist einhver kostnaður. Ég er ekki í neinum ágreiningi við hv. þingmann um það en ítreka sömuleiðis að við munum alveg standast allar áætlanir um kostnað við útgáfu bókarinnar. Það sem þetta mál snýst um er einfaldlega það að þegar bókin verður gefin út þá er í sjálfu sér ekki rétt að það sé þáverandi eða sitjandi forsætisráðherra sem skrifar undir formálann. Og hv. þingmanni til hugarróar þá get ég upplýst hana um að ég átti samtal við fyrrverandi forsætisráðherra um þetta mál og ég held að við séum bara alveg ágætlega sammála um að það skjóti dálítið skökku við að það sé gefin út bók á vegum Stjórnarráðsins löngu eftir að ráðherrann hefur beðist lausnar. (Forseti hringir.) Varðandi það að fyrrverandi ráðherra átti veg og vanda af útgáfu ritsins þá get ég líka sagt að að sjálfsögðu læt ég þess getið í formálanum, ég mun ekki taka neitt af fyrrverandi forsætisráðherra varðandi það að hún átti hugmyndina (Forseti hringir.) að því að setja vinnu af stað.

(Forseti (OH): Líkt og hæstv. forsætisráðherra veit þá er ræðutíminn 1 mínúta.)