154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

vaxtaákvarðanir Seðlabankans.

[10:43]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér svelgdist aðeins á kaffinu um helgina þegar ég hlustaði á hæstv. forsætisráðherra í viðtali við Ríkisútvarpið segja að það væri alveg óviðunandi hvað vextir væru háir. Ég er sammála honum í því. En það væri líka sérstakt áhyggjuefni að heimilin væru að segja sig úr lögum við vaxtaákvarðanir Seðlabankans með því að yfirgefa óverðtryggðu lánin. Hann nýtti líka tækifærið og sparkaði í Seðlabankann þegar hann var að spá í það og draga það fram að Seðlabankinn hefði lækkað vexti allt of hratt. Samt var þetta þannig að Sjálfstæðisflokkurinn gat notað þessa miklu vaxtalækkun á sínum tíma í mikla auglýsingaherferð. Ég velti því líka fyrir mér hvort hæstv. ráðherra þekkir þann fjármálaráðherra sem hefur stýrt ráðuneytinu síðastliðinn tíu ár þegar það er talað svona.

Við verðum líka að hafa það í huga að heimilin sem hann hefur áhyggjur af, sem eru að fara í verðtryggðu lánin, eru að leita skjóls. Þau eru að leita skjóls undan náttúrlega ofríki íslensku krónunnar en líka undan þeirri efnahagsstjórn sem hefur verið og það er ósköp eðlilegt að þau leiti þar allra leiða. Ég hef áhyggjur af því að sjá það að það eru ekki síst millitekjuhóparnir, háskólamenntað fólk, sem mun þurfa síðan að niðurgreiða m.a. samninga atvinnulífsins í dag. Þetta eru hóparnir sem munu verða fyrir mestu skattbyrðinni. Þetta eru hóparnir sem hafa ekki síðan árið 2000 fengið neinn kaupmátt, ekki neinn kaupmátt. Skilaboðin eftir þessi ár er að það borgar sig ekki að mennta sig á Íslandi. Við Íslendingar erum svona í faðmi gömlu Sovétríkjanna þegar kemur að ábatanum af menntun og það er áhyggjuefni.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Er það virkilega svo að stærsta áhyggjuefnið sé að heimilin séu að segja sig úr lögum varðandi vaxtaákvarðanir Seðlabankans? Er ekki miklu meira áhyggjuefni að Ísland er að segja sig úr lögum við siðuð samfélög þegar kemur að vöxtum og verðbólgu og þegar kemur að því að meta ábata af menntun?