154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

vaxtaákvarðanir Seðlabankans.

[10:45]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er nú dálítið erfitt að bregðast við þegar farið er svona vítt um völlinn og slitið úr samhengi og svo komið með spurningar sem hafa lítið með meginmál ræðunnar að gera. Ísland er ekkert að segja sig úr lögum við umheiminn í neinu samhengi. Það eru hins vegar lögmál hagfræðinnar að þar sem er hagvöxtur, þar sem er spenna og þar sem er mikil eftirspurn, þar er að jafnaði meiri verðbólga. Þar sem er meiri verðbólga en minni eru vextir sömuleiðis að jafnaði hærri en þar sem enginn vöxtur er. Það átti t.d. við í Svíþjóð um langt skeið, það gekk illa að fá hagvöxt í gang og vextir voru mjög lágir og neikvæðir fyrir t.d. þá sem skulduðu húsnæðislán.

Það er varla svo að hv. þingmaður ætli að gera ágreining við mig um það hversu slæmt það er að við séum í 11% húsnæðisvöxtum um þessar mundir. Það er gríðarlega alvarlegt mál og það getur aldrei verið ástand sem við búum við nema til mjög skamms tíma. Hv. þingmaður spyr hvort ég kannist við að bera einhverja ábyrgð á efnahagsmálum undanfarinn áratug. Já, ég geri það með miklu stolti. Við skulum bara skoða allar helstu efnahagsstærðirnar, hvernig þær hafa þróast síðastliðinn áratug. Þá fáum við mjög fagra mynd sem m.a. er sú að á Íslandi hefur hagvöxtur verið meiri og fleiri ný störf verið sköpuð en annars staðar. Við höfum byggt upp mörg hundruð milljarða gjaldeyrisforða og kaupmáttur hefur vaxið, líka hjá þeim sem hv. þingmaður heldur fram að hann hafi ekki vaxið hjá. Það er þess vegna rangt hjá hv. þingmanni að hér hafi millitekjuhópar engan kaupmáttarvöxt fengið síðastliðin fjögur ár. Þegar menn leggja upp með svona sem grundvallarspurningu þá er auðvitað farið af stað á röngum fæti. Þetta er einfaldlega rangt hjá hv. þingmanni. Það er alvarlegt mál þegar við sjáum að heimilin eru að yfirgefa óverðtryggðu lánin. (Forseti hringir.) Það er mikið umhugsunarefni. En það er ekki vegna ríkisfjármálanna, hv. þingmaður.