154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

vaxtaákvarðanir Seðlabankans.

[10:47]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég veit það ekki, en mér finnst það ákveðin fegurð hversu önugur hæstv. forsætisráðherra er eftir svona skamman tíma í setu. Ég hvet hann eindregið til þess að eiga samtal við hæstv. fjármálaráðherra síðustu tíu ára um það að við erum með eina hæstu vexti í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Við erum í sama hópi og Rússland og Úkraína, stríðshrjáð lönd. Þetta er árangur ábyrgrar efnahagsstjórnar síðustu ára. Ég hef hins vegar verulegar áhyggjur af því að afleiðing síðustu ára er sú að fólk sem hefur lagt sig fram um að mennta sig, fjárfest í menntun, fær ekki ábata af því. Þar erum við enn og aftur með gömlu sovétlýðveldunum í hópi. Mér finnst það áhyggjuefni til skemmri og lengri tíma.

Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að girða sig í brók þegar kemur að þessum hópum af því að það er ekki hægt að millitekjuhóparnir lendi enn og aftur í því, háskólamenntaða fólkið, að þurfa að standa undir meginskattbyrðinni hér á Íslandi, m.a. til þess að borga niður slaka (Forseti hringir.) efnahagsstjórn síðustu ára. Ég vil því hvetja(Forseti hringir.) hæstv. forsætisráðherra til að skoða svolítið stóru myndina og taka utan um alla hópa, ekki bara sína eigin.