154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[10:57]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Það eru 14 mánuðir liðnir síðan að svokölluð uppfærsla hófst á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og það bólar ekkert á niðurstöðu. Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar hefur tafist um meira en ár. Ekki er að finna neinar vísbendingar um fyrirætlanir um aukin framlög til samgöngumála hér á höfuðborgarsvæðinu. Ástæða þess að ég orða það þannig er sú að hæstv. innviðaráðherra hóf starf í nýju ráðuneyti á dögunum með því að lofa að það yrði keyrt á borgarlínuna. Ég skil það þannig að setja eigi bæði fjármagn, tíma og athygli á hönnun og uppbyggingu borgarlínu hér á höfuðborgarsvæðinu, auk annarra þátta sem heyra til samgöngusáttmálans.

Mig langar að vita hvernig á því stendur að enn er uppfærslu höfuðborgarsáttmálans svokallaða ekki lokið. Hvernig má það vera að það taki meira en eitt ár að uppfæra áætlun sem ríkið og sex sveitarfélög á suðvesturhorninu standa að og eru sammála um að framkvæma í samræmi við það? Við vitum auðvitað að Vegagerðin framkvæmir þessar samgöngubætur. Hvernig hyggst hæstv. innviðaráðherra standa við stóru orðin um að nú verði lögð enn meiri áhersla á borgarlínu — sem ég vissulega fagna, og áherslu nýs ráðherra á almenningssamgöngur almennt — þegar þess sér ekki stað neins staðar, hvorki í vinnu þingnefnda né annars staðar hér í þinginu?