uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og ekki síður tækifærið til að ræða þetta mikilvæga mál. Ég hef nú gert það, svona til að skerpa verkefnin á mínu borði, að raða þar nokkrum viðfangsefnum sem ég tel að sé mikilvægt að setja í forgang. Það er bara gleðilegt að geta sagt það við þingið hér að þar er efst á blaði samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins og borgarlína.
Það er rétt, sem hv. þingmaður segir, að ég tók við embættinu á dögunum, eins og hv. þingmaður orðaði það. Það sem ég hef gert á þessum vikum sem ég hef gegnt embætti er að leggja mikla áherslu á þetta mál, bæði innan húss og utan. Það er ekki bara vegna þess að það sé mér mikið hjartans mál heldur er það einfaldlega þannig að þar sem samgöngusáttmáli á höfuðborgarsvæðinu er grundvallaratriði í því að bæta umferð í höfuðborginni og gera byggðina hér betri fyrir allt fólk þá er það líka augljóst að markmið okkar í orkuskiptum í umferð munu ekki nást í tæka tíð nema þessi verkefni haldi dampi og komist á flug. Samgöngusáttmálinn er auðvitað mjög víðtækur, nær til fjölbreyttra framkvæmda og ýmiss konar samskipta víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og nágrenni þess. Þessi sáttmáli var eitt stærsta afrek síðustu ríkisstjórnar og þjóðþrifamál sem mörg sveitarfélög koma að. Ég árétta það að ég set þetta mál í algjöran forgang og algjöran forgrunn og þakka hv. þingmanni fyrir sinn efnislega og málefnalega stuðning við þær áherslur.