154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[11:02]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin. Það er auðvitað alveg rétt, ég styð hana eindregið í eflingu almenningssamgangna og því að staðið sé við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. En ég hef áhyggjur af því að þann stuðning sé ekki að finna alls staðar og ég velti fyrir mér hvort hæstv. innviðaherra hafi óskoraðan stuðning samstarfsflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, í þessu mikilvæga máli, af því að eitthvað hlýtur að stýra því að við höfum beðið í rúmt ár eftir uppfærslu þessa sáttmála sem allir styðja að sögn. Samgönguáætlunin hefur tafist úr hömlu. Það er ekki að sjá neins staðar, kannski er það að breytast, að það eigi að fjármagna höfuðborgarsáttmálann eða mjög nauðsynlegar framkvæmdir með einhverjum nýjum hætti. Þess vegna verð ég að spyrja hvort þessi staða endurspegli, eins og í mörgum öðrum málum, tilvistarkreppu þessarar ríkisstjórnar.