uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegur forseti. Ég geri mér nú grein fyrir því að hv. þingmaður hefur ákveðnar væntingar um það að ég muni svara þessu játandi, en það er nú ekki svo. Ég vil segja það að samgöngusáttmálinn er stærra viðfangsefni en svo að hann standi og falli með ríkisstjórnarsamstarfinu núna eða síðar vegna þess að stærðargráðan er þannig að allir flokkar á höfuðborgarsvæðinu og mismunandi meiri hlutar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu koma að máli. Sem betur fer ríkir hér sú framsýni í öllum meginatriðum að þetta sé mjög mikilvægt verkefni út frá loftslagsmarkmiðum en ekki síður út frá samfélagslegum ábata og því að hver króna sem sett er í samgöngusáttmálann skilar sér margfalt til baka. Ég tel því að við sem erum sammála um að setja þetta ekki bara á dagskrá heldur í forgang og í forgrunn eigum að snúa bökum saman óháð öllu samstarfi, hvort sem það er á vettvangi ríkis eða sveitarfélaga.