frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands.
Forseti. Eitt af þeim málum sem er til umfjöllunar hér á þingi er frumvarp forvera hæstv. forsætisráðherra um mannréttindastofnun sérstaka, sjálfstæða. Slík stofnun er m.a. forsenda lögfestingar sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og tengist ýmsum öðrum frumvörpum og tillögum sem eru til umræðu í þinginu, m.a. varðandi réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Hins vegar liggur núna fyrir að málið hefur ekki komið á dagskrá nefndar, það situr inni í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hefur ekki komið á dagskrá nefndarinnar frá því fyrir jól. Ekki virðist gert ráð fyrir stofnuninni í fjárlögum og þó að minnst sé á hana í fjármálaáætlun þá virðast ekki vera nein fjárframlög til stofnunarinnar þar þrátt fyrir það. Þá liggur fyrir að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gert fyrirvara við málið um Mannréttindastofnun Íslands, og svo sem iðulega um mannréttindi almennt. Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra, þar sem ég tel ljóst að þetta bendi til þess að ekki standi til að afgreiða málið á þessu þingi og það sé ekki í forgangi hjá hæstv. forsætisráðherra, hvort það sé vegna þess að hæstv. forsætisráðherra hefur ekki áhuga á málinu eða hvort það sé vegna þess að hann er á móti því.