frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegur forseti. Ég fæ hér tvær spurningar. Önnur er sú hvort ég hafi ekki áhuga á málinu eða sé þá á móti því. Hvorugt liggur þannig. Hér sagði hv. þingmaður að málið hefði ekki verið á dagskrá síðan fyrir áramót en staðreynd málsins er að málið var tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær þar sem fulltrúi Pírata var fjarverandi, sem vonandi er ekki til vitnis um áhugaleysi á störfum nefndarinnar. Málið er á forræði þingsins. Eftir að mælt hefur verið fyrir málinu þá er þingið komið með málið. Ég get bara talað fyrir stjórnarflokkana, þeir hyggjast klára þetta mál og ég trúi því að það geti gengið eftir.