landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Það er atriði sem mér finnst vanta aðeins í þessa áætlun til að byrja með, að hún sé í rauninni að horfa til lengri tíma heldur en nú er gert. Þegar allt kemur til alls erum við að skipuleggja samfélag utan um fólk. Það er ekki verið að horfa á það hvar og hvernig fólksfjölgun verður á Íslandi næstu áratugina eins og við ættum að gera. Við ættum að spyrja okkur: Þegar það búa milljón manns á Íslandi, hvar mun þá fólk búa? Þegar við getum svarað því, þá getum við byrjað að skipuleggja hvernig við ætlum að komast þangað. Auðvitað er það ekki bein leið, að sjálfsögðu. Við þurfum alltaf að spyrja okkur spurninga inn á milli. En þegar við höfum svarið: Milljón á Íslandi búa hér — eitthvað svona kort eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir minnist á — þá getum við gert áætlanir um það hvaða stefnu við eigum að taka.
Það skiptir nefnilega (Forseti hringir.) höfuðmáli að við vitum hvar fólk kemur til með að búa, upp á uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu, samgöngum og öllu öðru sem við reynum að sinna og fjármagna hérna á Alþingi. (Forseti hringir.) Þannig að mér finnst þetta vera skammsýn stefna en þó skref.