154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

húsnæðisbætur.

1075. mál
[14:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um hækkun húsaleigubóta. Því miður sitja ekki allir við sama borð. Vegna kjarasamninga var þetta hækkað um 25% en það er stór hópur, þeir alfátækustu, sem fá ekki þessa kjarasamninga, 23.750 kr. á mánuði afturvirkt frá 1. febrúar. Þeir eru að fá húsaleigubætur en þeir sem fá sérstakar húsaleigubætur, hvað verður um þá? Jú, sveitarfélögin verða að taka ákvörðun um það hvort þau ætli að hækka þakið, hvort þær verði skertar vegna þessara hækkana, hvort þeir fátækustu sem eru í sárafátækt fái ekki sérstöku húsaleigubæturnar nema skertar. Það er eitthvað sem við verðum að fara að laga.

Það furðulegasta við þessar sérstöku húsaleigubætur er að sveitarfélögin ráða þessu sjálf og það er jafn mismunandi og sveitarfélögin eru mörg. Við hljótum að geta séð til þess að þeir sárafátækustu fái nákvæmlega það sama og allir hinir og fái líka hækkanir sem voru í þessum kjarasamningum þannig að þeir standi á sama stað og jafnfætis öðrum launamönnum.