húsnæðisbætur.
Virðulegi forseti. Það var eðlilegt að verkalýðshreyfingin legði áherslu á að styrkja tilfærslukerfi við síðustu kjarasamningsgerð vegna þess að skerðingar í kerfunum hafa ekki fylgt verðlagsbreytingum undangenginna ára og hafa því í raun rýrnað verulega. Viðreisn styður því að þessar breytingar séu gerðar. En kostnaður vegna þessa frumvarps, sem er eitt af mörgum vegna þessara kjarasamninga, er áætlaður um 2,5 milljarðar og er því miður ófjármagnaður. Það er óábyrgt af þessari ríkisstjórn að leggja til fjármuni upp á tugi milljarða án þess að búið sé að fjármagna slík útgjöld. En kannski, virðulegur forseti, var ekki við öðru að búast frá þessari ríkisstjórn.