útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar fyrir framsöguna í þessu mikilvæga máli. Ég tel gríðarlega mikilvægt að allir geti tjáð sig opinskátt um þetta mikilvæga málefni sem hefur svo mikil áhrif fyrir samfélagið. Það er ljóst að markmið þessa frumvarps er að samræma íslenska löggjöf við löggjöf Norðurlandanna. Það er líka markmið að fækka umsóknum. Það kemur fram í kaflanum um tilgang og markmið, líka það að gera kerfið skilvirkara. Með það að markmiði er í frumvarpinu leitast við að hafa þetta í samræmi við Norðurlöndin. En mig langar að spyrja hv. framsögumann: Hvernig stendur á því að það er komið með breytingartillögu um undanþágu? Það er undanþága í frumvarpinu sem liggur fyrir. Svo kemur önnur undanþága sem byggir á inngildingu. Hvar er samræmið við Norðurlöndin hvað þetta varðar? Af hverju er ekki gerð krafa um framfærsluskyldu og inngildingu í upphaflegu fjölskyldusameiningunni eins og er í Danmörku? (Forseti hringir.) Hvar er samræmið, til hvaða ríkis á Norðurlöndum er verið að líta til varðandi þessa breytingartillögu sem meiri hluti nefndarinnar leggur til varðandi fjölskyldusameiningu?