154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hér er verið að spyrja út í þá breytingartillögu sem meiri hlutinn gerir við frumvarpið og kannski ekki síður bara þær breytingar sem eru í frumvarpinu varðandi fjölskyldusameiningar. Því er til að svara að með frumvarpinu er verið að feta svipaða leið og þekkist á hinum Norðurlöndunum, þ.e. að fólk þurfi að hafa endurnýjað dvalarleyfi sín, en þau eru mismunandi löng eftir Norðurlöndunum. Það eru líka mismunandi kröfur og það kemur vel fram í minnisblaði frá ráðuneytinu þar sem farið er yfir kröfur mismunandi landa. Það er alveg ljóst, held ég, að á öllum Norðurlöndum er það þannig að fjölskyldusameining getur aldrei orðið strax því að ákvæðin eru þannig að einstaklingar þurfa að uppfylla einhver ákveðin skilyrði og það mun taka tíma.

Í því frumvarpi sem hér liggur fyrir var gert ráð fyrir að þeir sem hefðu viðbótarvernd þyrftu í rauninni að bíða í tvö ár, þ.e. endurnýja dvalarleyfi sitt aftur, fá endurnýjun á því til að geta óskað eftir fjölskyldusameiningu. Sú breyting sem við gerum svo í meðförum nefndarinnar (Forseti hringir.) er ákveðinn hvati, til að hvetja fólk sem hingað kemur og vill fá fjölskyldusameiningu til að leggja sig fram við að aðlagast íslensku samfélagi, taka þátt í því, (Forseti hringir.) vera aðilar á vinnumarkaði, hafa lært íslensku og auðvitað að geta búið fjölskyldu sinni sæmilegt heimili þegar hún kemur til landsins.