154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í þessari breytingartillögu er verið að stytta tímann fyrir fjölskyldusameiningu niður í eitt ár. Hin sjálfsagða regla á að vera sú að einstaklingar geti séð fjölskyldum sínum farborða og búið þeim viðeigandi húsnæði. Þetta er grundvallaratriði, ég tala nú ekki um einhverja íslenskukunnáttu, sama hversu mikil færni þar er á bak við. En það virðist liggja þarna í loftinu að það má leyfa fjölskyldusameiningu eftir tvö ár án þess að hafa framfærsluskyldu, án þess að búa í viðeigandi húsnæði og án þess að hafa færni í íslensku. Svo á að líta til sanngirnissjónarmiða, þá er ég eingöngu að tala um frumvarpið í heild, en svo kemur önnur undanþága. Jú, þú færð fjölskyldusameiningu eftir eitt ár ef þú ert með viðeigandi húsnæði, ef þú ert með atvinnu og með íslenskukunnáttu. Þessi skilyrði ættu náttúrlega að vera í frumvarpinu upphaflega. En hérna er verið að víkja frá reglum sem er á Norðurlöndunum eins og í Danmörku þar sem er gerð krafa, að sjálfsögðu, um framfærsluskyldu á sinni fjölskyldu ef það á að koma til sameiningar hennar. Ég get ekki séð annað en að hér sé verið að búa til enn eina íslensku sérregluna í frumvarpi þar sem á að ná samræmi við hin Norðurlöndin, (Forseti hringir.) fyrir utan það að frumvarpið nær ekki samræmi við hin Norðurlöndin hvað varðar löggjöf á þessu sviði.