útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að þarna séum við hreinlega ekki sammála um að ákveðnir þættir hafi gengið illa í nágrannalöndunum okkar. Ég tala svo sannarlega fyrir því að við lærum af nágrannaríkjum okkar, bæði það sem þau hafa gert vel og líka það sem þau hafa gert illa. (ArnG: Það er þannig.) Það er þannig í dag að óbreyttum lögum að möguleikinn á því að koma hingað og fá vernd og fá lengri dvalarleyfi og geta strax sótt um fjölskyldusameiningu er meiri hér en á hinum Norðurlöndunum. Í því felst ákveðinn hvati. Ísland hefur á síðustu árum tekið á móti mjög mörgum á flótta og ég átta mig alveg á því að heimsmyndin okkar er þannig að það hafa aldrei fleiri verið á flótta. En það eru engu að síður takmörk fyrir því hvað litla Ísland getur tekið á móti mörgum, samfélagslegir innviðir okkar, hvort sem það eru skólarnir okkar, félagsþjónustan, ég tala nú ekki um húsnæðismarkaðinn. Það sem verið er að gera hér (Forseti hringir.) í þessu frumvarpi er að reyna að nálgast hin Norðurlöndin vegna þess að það er alveg ljóst að (Forseti hringir.) Ísland mun ekki geta tekið á móti yfir 4.000 umsóknum þeirra sem óska hér eftir vernd á ári hverju.