útlendingar.
Forseti. Yfir 4.000 umsóknir. Þorri þessara umsókna er ekki frá fólki sem er að sækja um fjölskyldusameiningu og brotabrot frá þeim einstaklingum sem þetta frumvarp bitnar á, þannig að þetta hefur ekkert með það að gera. Það eru einstaklingar fyrst og fremst frá Úkraínu sem við höfum tekið opnum örmum. Það hvort reynslan hafi verið góð eða slæm af skerðingum á möguleikum fólks til fjölskyldusameiningar er ekki spurning um það að vera sammála eða ósammála. Það er búið að athuga þetta, búið að kanna þetta og ég held að hv. þingmaður reyndar viti það mætavel, enda kemur það skýrt fram í skýrslum og opinberum gögnum sem m.a. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lagt fram. Það má taka það fram að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er alls ekkert sérstaklega róttæk stofnun. Hún er mjög íhaldssöm og fer mjög varlega í að gagnrýna það sem ríki gera en þó hefur hún gagnrýnt þetta. Hins vegar opinberaði hv. þingmaður eitt hérna sem er það að jú, þetta með fjölskyldusameiningarnar snýst greinilega um það að taka á móti færra fólki. Við erum að taka á móti allt of miklu af flóttafólki, það er allt of mikið af fólki hérna, flóttafólki. Við þurfum náttúrlega annars konar fólk, ekki flóttafólk. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann aftur: Hvers vegna er þessi krafa bara fyrir fólk á flótta en ekki önnur dvalarleyfi (Forseti hringir.) þegar fjölskyldusameiningar fólks á flótta eru, það birtist í fjölmiðlum í dag, 5% allra fjölskyldusameininga? Hvers vegna eru þessar kröfur ekki gerðar til annarra dvalarleyfa sem sömuleiðis eru tímabundin eins og þessi?