útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er einmitt nýlegt svar sem liggur frá dómsmálaráðuneytinu um fjölda fjölskyldusameininga og þar er hann brotinn niður eftir mismunandi flokkum og það er auðvitað mjög mikið um fjölskyldusameiningar. Oft eru það bara Íslendingar sem eru giftir útlendingum og fá fjölskyldusameiningu á slíkum forsendum. Það eru sérfræðileyfin okkar. Það er fólk sem er með dvalar- og atvinnuleyfi og svo eru það þeir sem falla undir þann hóp að vera flóttamenn. Ég ætla að ítreka það sem ég sagði hér áðan: Varðandi fjölskyldusameiningar og tímamörk þá er ég persónulega á þeirri skoðun að inngildingarkröfur eða -hvatar séu jafnvel betur til þess fallin en að hafa einhvern árafjölda. En ég átta mig líka á því að það kunni að vera ákveðið flækjustig í að halda utan um það og þess vegna leggjum við til þessa breytingartillögu sem ég held að sé mikilvæg. Hún hvetur fólk í þessari stöðu til að leggja sig fram við að læra íslensku, taka þátt á vinnumarkaðnum og geta framfleytt fjölskyldu sinni. Það var mjög góð ábending sem kom fram í umfjöllun nefndarinnar að fjölskyldusameiningar (Forseti hringir.) ganga alla jafna betur þegar fólk hefur haft tækifæri til að undirbúa vel komu fjölskyldu sinnar, taka þátt í samfélaginu. Þetta sögðu okkur reyndir aðilar á fundinum þannig að það er alveg ljóst. (Forseti hringir.) En á sama tíma skiljum við það vel að það er auðvitað mikilvægt fyrir flóttafólk að geta fengið að sameinast (Forseti hringir.) fjölskyldu sinni eins hratt og unnt er. En til þess að svo geti verið þá þarf fólk líka að hafa tækifæri til að undirbúa komu fjölskyldunnar.