154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið þessa grein og þekki ekki aðstæður þessa einstaklings þannig að ég get ekki tjáð mig út frá því. En í mínum huga er afnám þessarar 2. mgr. 36. gr. mjög mikilvægt. Það er séríslensk regla. Ef hv. þingmaður og Viðreisn er því ósammála þá er bara fínt að fá það fram í samtali. En það kemur til að mynda í ljós núna í umræðunni um þetta frumvarp að Flóttamannastofnunin var ekki að gera sérstakar athugasemdir við það, enda eru öll ríki Evrópusambandsins, sem ég veit að hv. þingmaður er oft mjög ánægður með, að reyna að samræma regluverk sitt. Þau eru ekki með svona ákvæði. Það er auðvitað aldrei þannig að fólk sé vísað brott héðan úr landi í ómanneskjulegar aðstæður. Þegar talað er um götuna á Grikklandi þá er það jú þannig að Grikkland hefur tekið á móti miklum fjölda flóttamanna en þau hafa líka fengið til þess styrki frá Evrópusambandinu þannig að jafnvel þó að ég geti fundið til með fólk í þeirri stöðu þá segi ég fyrir mitt leyti: Litla Ísland getur ekki tekið á móti öllum þeim sem af einhverjum ástæðum (Forseti hringir.) hafa ekki fengið nægjanlega góða aðstoð á Grikklandi þar sem þeir hafa þó fengið vernd.