154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:49]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum búin að skuldbinda okkur til að taka við öllum frá Úkraínu sem sækja um það, bæði fullorðnum og börnum. Ef það brysti nú á stríð á Íslandi og ég þyrfti að flýja til Palestínu þar sem ríkti friður og ró og mig langaði til að fá fjölskyldu mína til mín, myndi ég geta það? Þyrfti ég að læra arabísku áður ef ég fengi að tala við fjölskyldu mína? Gæti kannski verið að ég ætti auðveldara með að aðlaga mig að samfélaginu í Palestínu þegar börnin mín kæmu af því að þau eru fljótari að aðlaga sig að breyttum aðstæðum en fullorðnir? Ég á erfitt með að skilja það hvers vegna eigi að herða að fjölskyldusameiningu. Er einhver mannúðarsjónarmið sem ráða því að við ætlum að gera það að verkum að fjölskyldur geti ekki sameinast? Ég bara átta mig ekki á þessu. Hvar eru gæðin í þessum tillögum sem verið er að leggja fram?