154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:54]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en mér finnst þessi regla sem er verið að búa til vond. Mér finnst þessi tímamörk, tvö ár, vera vond. Úr því að menn voru á annað borð að gera þessar undanþágur út frá einhverjum tilteknum hæfniskröfum þá hefði mér fundist réttast að stíga skrefið til fulls og fella út tveggja ára viðmiðið.

Það er annað sem mig langar að gera athugasemd við þegar við ræðum um þessi mál. Það endurspeglaðist nú eiginlega bara í einni setningu hjá hv. þingmanni í ræðunni áðan því að í einni og sömu setningunni var sagt: Við erum að samræma regluverkið við Norðurlöndin sem þó eru ólík innbyrðis. Þetta var í einni og sömu setningunni. Þetta er einmitt vandinn sem við erum svolítið að horfa á hérna í umræðunni. Það er alltaf verið að tala eins og það sé til eitthvert samevrópskt eða sameiginlegt regluverk á Norðurlöndunum þegar það er ekki. Það er flóttafólk frá tilteknum löndum sem kemur ekki til Íslands en það kemur til annarra landa. Það eru til þá einhverjir sérþýskir eða sérbelgískir eða sérhollenskir seglar, rétt eins og það er eitthvað ólíkt með regluverkinu hér á Íslandi og einhverjum tilteknum öðrum Norðurlöndum. Mig langar að spyrja hv. þingmann um þetta: Væri ekki hægt að afgreiða málið í eitt skipti fyrir öll og ákveða sig (Forseti hringir.) hvort Norðurlöndin séu með samræmt regluverk eða ekki frekar en að tala um það í einni og sömu setningunni, að við séum að samræma okkur regluverki á Norðurlöndum sem þó eru ólík innbyrðis?