útlendingar.
Forseti. Ég verð að leiðrétta aðeins hv. þingmann vegna þess að viðbótarverndin, það er það sem við erum að tala um núna, það er verið að þrengja að fjölskyldusameiningu þeirra sem fá viðbótarvernd, snýr einmitt og nákvæmlega að almennu ástandi í því landi sem einstaklingurinn er að koma frá. Ekki persónulegar ofsóknir. Það eru flóttamenn. Þetta er ekki sami hluturinn. Við erum að veita manneskju viðbótarvernd vegna þess að ástandið í heimalandi þessarar manneskju er talið vera hættulegt og þessi einstaklingur er að sækjast eftir því að fá fjölskylduna til sín til að bjarga henni úr hættulegu ástandi. Við erum að þrengja að getu þessa fólks til að koma hingað löglega og örugglega, án þess að þurfa að fara í gegnum ólöglegar leiðir og hættulegar leiðir í gúmmíbátum til að koma hingað. Ég er að vísa í raunveruleg gögn sem eru til sem sýna það að þegar Danmörk og Evrópa fóru þessa leið, að þrengja að fjölskyldusameiningum fólks sem fær viðbótarvernd, þá fjölgaði alveg gríðarlega börnum sem eru tekin í þessa háskaför með smyglurum í gúmmíbátum og börnum sem drukkna á leiðinni. Þetta er mannfallið. (Forseti hringir.) Þetta er afleiðing þessara ákvarðana. Ég vil bara spyrja hv. þingmann, vitandi að þessi gögn eru til, ég er ekki að skálda þetta hérna, þetta er afleiðing þessara ákvarðana um að þrengja að fjölskyldusameiningu: (Forseti hringir.) Finnst hv. þingmanni réttlætanlegt að gera það í nafni skilvirkni eða samræmingar við löggjöf á Norðurlöndunum?