útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og nefndarálitið og samstarfið í allsherjar- og menntamálanefnd við umfjöllun á þessu mikilvæga máli. Ég verð nú að viðurkenna að ég átti von á ögn meiri jákvæðni hjá hv. þingmanni í garð þessa frumvarps sem hér liggur fyrir, ég hef samt skilið hann sem svo að hann telji það mikilvægt. En það er alveg ljóst að fólk nálgast það engu að síður með aðeins mismunandi hætti. Ég er ekki viss um að ég skilji fyllilega allar breytingartillögurnar en ég mun sannarlega gera það þegar kemur að atkvæðagreiðslunni. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Er það í alvöru svo að hann telur þá breytingu sem meiri hlutinn kemur með í sínu nefndaráliti, sem hann kallaði gulrót eða ívilnun til þess að fólk leggi sig fram til að mynda við að læra íslensku og taki þátt á atvinnumarkaði og geti séð fjölskyldu sinni farborða — að honum hugnist ekki sú breyting? Skildi ég hv. þingmann rétt þegar hann fór yfir það í ræðu sinni?