útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Þetta eru góðir punktar sem hún kemur inn á. Við veitum viðbótarvernd hér á landi og við segjum: Við ætlum að gefa þér kost á að búa í okkar landi, í íslensku samfélagi, en við gerum þær kröfur að á meðan þú ert hérna reynir þú að koma þér fyrir. Það er krafa á að taka átt í atvinnulífinu, afla sér húsnæðis og tala tungumálið. Þetta á allt að vera krafa. Það getur vel verið að einstaklingur sé hérna sem þarf vernd vegna ofsókna t.d. og hann sé bara að bíða eftir að fjölskyldan komi, hann leggi raunverulega ekkert á sig til að aðlagast íslensku samfélagi eða taka þátt með virkum hætti á atvinnumarkaði. Mér finnst þessi krafa bara réttmæt, að gera hana alltaf, ekki að segja: Heyrðu, þú færð fjölskyldusameiningu eftir eitt ár ef þú gerir þetta og þetta. Þessi krafa er réttmæt, skilyrði fyrir því vera í landinu og ég tala nú ekki um þegar kemur að fjölskyldusameiningu.