154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:40]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og skemmtileg samtöl um þetta mál og það var gaman að vera með hv. þingmanni í allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta þingi. Varðandi breytingartillöguna þá er þetta sama tillaga og var í samráðsgátt stjórnvalda. Það eina sem við gerum er að við bætum við setningunni: „Sama á við ef umsókn er bersýnilega tilhæfulaus.“ Það er af því að við vildum setja sænska kerfið þarna inn. Við teljum að á fyrsta stjórnsýslustigi, þegar umsækjandi sækir um, við þessi skilyrði sem þar koma fram, þá sé það óþarft.

Varðandi hin Norðurlöndin, að það séu frjáls félagasamtök sem eru með þjónustu þar, þá er það ekki á vegum stjórnvalda en að sjálfsögðu er mikilvægt að íslensk stjórnvöld styðji frjáls félagasamtök og það má vel hugsa sér að íslensk stjórnvöld, ef þessi grein yrði að lögum, myndu styðja frjáls félagasamtök sem gætu tekið upp málstað umsækjenda ef til þess kæmi. Það væri alveg sjálfsagt og gott fyrirkomulag að mörgu leyti. En það myndi vera allt annars eðlis en að segja: Heyrðu, ríkið borgar kostnaðinn við talsmann í öllum tilfellum. Ég tel að það eigi að takmarka þjónustuna með sama hætti á hinum Norðurlöndunum. Það mætti vel hugsa sér að gera eins og í Noregi, við heimsóttum nú í fyrra eða hittiðfyrra í Ósló í Noregi svona samtök, og það má vel hugsa sér að ríkið myndi í staðinn koma með einhvers konar takmarkaðar fjárveitingar til þannig félagasamtaka sem gætu líka tekið þátt í umræðunni um þennan mikilvæga málaflokk á þeim grundvelli og stutt umsækjendur með sama hætti og frjáls félagasamtök gera á hinum Norðurlöndunum.