154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:45]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Samfylkingin kallar eftir sanngjarnri innflytjendastefnu þar sem við öxlum ábyrgð gagnvart fólki á flótta og alþjóðlegum skyldum okkar en gætum þess þó á sama tíma að félagslegur jöfnuður og velferðarsamfélagið okkar líði ekki fyrir áralangt vanmat á þeim áskorunum sem fylgja því að taka vel á móti fólki sem vill byggja upp íslenskt samfélag. Hérna fer saman ábyrg inngilding og aðlögun allra aðila að breyttri heimsmynd. Við verðum að gera kröfur til fólks um að það taki virkan þátt í samfélaginu okkar og kröfur til velferðarkerfis okkar um að það geri fólki kleift að gera nákvæmlega það. Regluverkið okkar verður að vera fyrirsjáanlegt, það á að vera ábyrgt, það á að vera gagnsætt. Ísland á líka í lengstu lög að tryggja réttindi allra barna, ekki síst fylgdarlausra barna á flótta, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi.

Það er mat Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna að 110 milljónir manna séu á flótta á heimsvísu og þessi tala fer hækkandi í sífellt óöruggari heimi. Yfir helmingur þeirra sem eru á flótta eru börn. Mikill meiri hluti þeirra hefst við í flóttamannabúðum í nágrenni við hin óöruggu svæði, í löndum sem eru misvel í stakk búin til að takast á við þessar áskoranir. Útgönguleiðum af þeim svæðum er alla jafna stýrt af skipulögðum glæpahópum, smyglurum sem ýmist flytja fólk yfir höf í lífshættulegar aðstæður eða neyða fólk í mansal. Tugir þúsunda hafa látist á ferð sinni yfir Miðjarðarhaf síðan 2014. Þetta er veruleiki sem varðar okkur hér inni í þingsal í dag.

Ísland getur ekkert leyst þessar áskoranir á eigin spýtur. En við getum heldur ekki skilað auðu í þessum alþjóðlega vanda, lokað hér dyrum alfarið og handvalið þau sem hljóta hér vernd. Þannig virkar kerfið okkar ekki. Við viljum virða þjóðréttarlegar skyldur okkar og takast á við það að verkefni, rétt eins og önnur lönd sem við berum okkur saman við. Þá er ekki ómálefnalegt, ómannúðlegt eða óæskilegt að líta til þess hvort regluverkið okkar sé til þess fallið og þess eðlis að hér gildi matskenndari eða óljósari reglur en annars staðar.

Ísland getur margt. Við getum mjög margt en við erum fámenn og við megum ekki ofmeta getu stjórnsýslunnar til að taka stærri skerf af þeim fjölda fólks sem er á flótta en nágrannaríkin. Að benda á það eitt felur hvorki í sér afneitun á neyð fólks á flótta eða skort á vilja okkar til að koma þeim til hjálpar. Við berum líka skyldu til að bregðast við þegar biðtími eftir úrlausn er langur. Þá er ekki forsvaranlegt að svara því einu að það þurfi bara að setja meiri kraft í kerfið. Þess vegna viljum við í Samfylkingunni styðja við þær breytingar frumvarpsins sem eru að okkar mati sannarlega líklegar til þess fallnar að auka skilvirkni í stjórnsýslu útlendingamála án þess að það komi niður á réttindum umsækjenda. Við leggjum hins vegar til breytingar á ákvæðum frumvarpsins sem eru betur til þess fallnir að standa vörð um grundvallarmannréttindi fólks á flótta og styðja við farsæla inngildingu hér á landi.

Forseti. Til að gera grein fyrir nefndaráliti 2. minni hluta þá styðjum við þær breytingar frumvarpsins sem eru, eins og fyrr segir, til þess fallnar að auka skilvirkni, hraða málsmeðferð og færa íslenska útlendingalöggjöfinni nær lagaumhverfi nágrannaríkja. Sú mikla fjölgun sem orðið hefur á umsóknum um alþjóðlega vernd á undanförnum árum er fyrst og fremst til komin vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu sem þverpólitísk samstaða var um sem og vegna sérstakrar stjórnsýsluframkvæmdar í málefnum umsækjenda frá Venesúela sem skar sig svo sannarlega úr frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hefur Ísland skorið sig úr þegar kemur að hlutfallslegum fjölda umsókna frá einstaklingum sem þegar njóta verndar í öðrum Evrópuríkjum. Íslensk stjórnsýsla stendur því frammi fyrir talsvert miklum áskorunum vegna málafjölda og þess langa málsmeðferðartíma sem tíðkast hefur í málaflokknum.

Þær breytingar sem lagðar eru til á skipan og starfsumhverfi kærunefndar útlendingamála samkvæmt 1. og 2. gr. frumvarpsins eru almennt til bóta og til þess fallnar að auka málshraða án þess að vegið verði að réttinum til vandaðrar málsmeðferðar.

Núgildandi málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. um sérstakar ástæður og sérstök tengsl felur í sér matskennda stjórnvaldsákvörðunartöku sem kallar á ítarlega rannsókn á öllum þeim málum sem koma á borð stjórnvalda. Verulega hefur skort á skýrleika við framkvæmd ákvæðisins gagnvart þeim sem ákvæðið tekur til. Það heyrir til undantekninga að mál séu tekin til efnismeðferðar á grundvelli þess samkvæmt þeim tölum sem liggja fyrir. Það flókna og tímafreka mat sem undanþáguákvæðið gerir kröfu um hefur engu að síður þyngt stjórnsýslu útlendingamála og átt sinn þátt í að málsmeðferðartími hefur lengst í öllum málaflokkum sem útlendingamál varða. Jafnframt hafa 12 mánaða tímamörk á málsmeðferð verið til þess fallin að draga úr gæðum hennar og er um séríslenska reglu að ræða. Til að bregðast við þessari stöðu leggur 2. minni hluti til að ákvæðinu verði breytt til samræmis við samsvarandi ákvæði í norsku útlendingalögunum. Þar er einvörðungu kveðið á um að sérstök tengsl, ekki sérstakar ástæður, geti orðið tilefni efnismeðferðar, þó ekki í þeim tilvikum er umsækjendur hafa þegar fengið vernd í öðru ríki. Með því að fara norsku leiðina yrði horfið frá beitingu matskenndrar reglu um sérstakar ástæður og leitast við að tryggja, með hlutlægum og fyrirsjáanlegum viðmiðum, að umsækjendur um alþjóðlega vernd verði ekki slitnir frá aðstandendum sínum. Um leið yrði stuðlað að fækkun umsókna frá einstaklingum sem þegar hafa fengið vernd í öðru ríki.

Jafnframt má taka undir þær breytingar sem lagðar eru til á gildistíma dvalarleyfa í 9. og 10. gr. frumvarpsins til samræmis við réttarþróun á hinum Norðurlöndunum. Hins vegar verður að gera alvarlegar athugasemdir við þær breytingar sem lagðar eru til í 6.–8. gr. frumvarpsins á reglum um fjölskyldusameiningar því að þær falla bæði á prófinu um mannúð og skilvirkni. Breytingarnar eru til þess fallnar að valda flóttafólki vanlíðan, skapa einangrun og grafa undan farsælli inngildingu. Jafnframt munu þær skapa fyrirsjáanlegan réttarágreining í stjórnsýslu útlendingamála sem áður hefur ekki verið til staðar og vinna þannig gegn markmiðum um aukna skilvirkni og hraðari málsmeðferð. Þess vegna leggjum við til að fallið verði frá þessari breytingu en í staðinn verði gerð krafa um trygga framfærslu eins og tíðkast víða í nágrannalöndunum.

Til þess að árétta réttan skilning ákvæðisins þá er hugsunin ekki sú að útvíkka þau skilyrði sem þegar eru fyrir hendi í 55. gr. útlendingalaga sem kveður á um framfærsluskyldu og framfærslu umsækjenda um dvalarleyfi, samanber a-lið 1. mgr. 55. gr.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna bendir á það í umsögn sinni um frumvarpið að með fjölskyldusameiningu er flóttafólki tryggður möguleiki á að ferðast eftir löglegum og viðurkenndum leiðum án þess að reiða sig á smyglara og glæpahópa til að komast hingað til lands. Stofnunin varar eindregið við þeirri leið sem farin er í frumvarpi ráðherra. Fyrirhugaðar takmarkanir á fjölskyldusameiningum munu aðeins ná til viðbótarverndar- og mannúðarleyfishafa eins og fram kemur í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins frá 10. maí sl. og skal vísast til þeirrar umfjöllunar. Við vitum að samkvæmt ákvæðum útlendingalaga þá grundvallast viðbótarvernd á almennu ástand í heimaríki viðkomandi á meðan alþjóðleg vernd lýtur að einstaklingsbundnum aðstæðum. Einmitt af þeirri ástæðu er í senn óæskilegt og óeðlilegt að lögfesta sérstakan biðtíma þegar um viðbótarverndarhafa er að ræða, enda er ástand þá í heimaríki viðkomandi þess eðlis að raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri meðferð eða vanvirðandi meðferð og refsingu. Eðli málsins samkvæmt er fjölskyldu viðkomandi sem búsett er í heimaríki í sömu hættu vegna þessa og sá sem upphaflega fékk veitta viðbótarvernd.

Það er ástæða til að minnast á að í 1. umræðu um frumvarpið þá bentum við í Samfylkingunni á að breyttar reglur um fjölskyldusameiningu yrðu til þess fallnar að skapa nýjan réttarágreining, en markmiðið með þessu frumvarpi er að þær fari í auknum mæli frá kerfinu. Þetta skapi nýjan réttarágreining og er til þess fallið að fjölga kærumálum. Hér ráða ekki skilvirknisjónarmið för heldur eitthvað annað. Kærunefnd útlendingamála er meira að segja sömu skoðunar. Í umsögn sinni benti hún á það að þeir sem hljóta viðbótarvernd eða mannúðarleyfi hjá Útlendingastofnun kunni að vera líklegri til að kæra þá niðurstöðu í auknum mæli til kærunefndarinnar enda er hætt við því að mismunandi skilyrði eftir verndarflokkum fyrir fjölskyldusameiningu muni auka flækjustig og álag, þvert á yfirlýst markmið frumvarpsins, forseti, hér verður nýr stór stafli til.

Við teljum jafnframt að fyrirhugaðar breytingar á 1. mgr. 77. gr. laganna, um bráðabirgðaatvinnuleyfi þess sem bíður endanlegrar ákvörðunar um umsókn um alþjóðlega vernd, hljóti að verða að taka mið af því tímamarki þegar niðurstaða kærunefndar útlendingamála liggur fyrir í stað Útlendingastofnunar. Það verður að gera ráð fyrir því að flestir umsækjendur nýti lögbundinn rétt sinn til að kæra niðurstöðuna til æðra stjórnvalds. Slíkt er sjálfsagt í réttarríki. Svipting bráðabirgðaatvinnuleyfis á þessu stigi myndi jafnframt leiða til þess að umsækjendur sem bíða niðurstöðu kærunefndar þyrftu að reiða sig á þjónustu hins opinbera. Að þessu leyti þjónar þetta ákvæði frumvarpsins því hvorki yfirlýstum markmiðum um mannúð né skilvirkni, fellur líka á því prófi, og gæti falið í sér gríðarlegan kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.

Forseti. Fjölbreytt samfélög geta verið bestu samfélögin en það er grundvallarskilyrði að þar ríki félagslegur jöfnuður, grundvallarskilyrði. Það er mikil vinna að standa vörð um hann. Það er mikil vinna fólgin í því að sjá til þess að hér sé enginn skilinn eftir og við þurfum að vera stöðugt á varðbergi. Við lítum ekki fram hjá ómetanlegu framlagi innflytjenda til íslensks samfélags þegar við segjum að skörp aukning innflytjenda, hvort sem það er flóttafólk sem kemur hingað í leit að vinnu og tækifærum eða aðrir, hefur haft sín áhrif á fólk og störf þeirra í framlínunni, í velferðarkerfinu, í menntakerfinu. Þetta er bein afleiðing af atvinnustefnu, ofuráherslu stjórnvalda á vöxt mannaflsfrekra atvinnugreina síðustu ár. Ég ítreka að það þarf að standa vörð um félagslegan jöfnuð umfram allt. Til þess erum við jafnaðarmenn.

Þessi staða hefur líka haft áhrif á aðbúnað flóttafólks hér á landi sem nú er kennt um það að vanræksla stjórnvalda gagnvart velferðinni og félagslegum jöfnuði hefur leitt til þess að skýr teikn eru á lofti um að þörfum fólks af erlendum uppruna sé ekki sinnt sem skyldi. Ef ríkisstjórnin er þeirrar skoðanir að innviðir okkar séu sprungnir þá er það ekki flóttafólki eða farandverkafólki um að kenna. Það er og verður á ábyrgð stjórnvalda. Brottvísun getur í eðli sínu aldrei verið mannúðleg. Hún er einhver mest íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem hugsast getur. Það er hins vegar líka erfitt að sjá fyrir sér kerfi þar sem við getum alfarið komið í veg fyrir þær. Þess vegna verðum við að vanda okkur enn þá betur í tali um breytingar sem nauðsynlegt er að ráðast í hverju sinni í breyttum og sífellt óöruggari í heimi.

Forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar fyrir gott samstarf í nefndinni sem og nefndinni allri. Við í Samfylkingunni höfum rýnt þetta mál í þaula. Við höfum velt við hverjum steini og við erum ánægð með breytingartillögur okkar sem við vonum að geti hlotið hljómgrunn hér í þingsal. Við ætlum ekki að láta okkar eftir liggja í umbótum á stjórnsýslu útlendingamála en við eigum heldur ekki að samþykkja breytingar breytinganna vegna. Þær þurfa að þjóna yfirlýstum tilgangi um mannúð og skilvirkni.