útlendingar.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna og nefndarálitið og ekki síst fyrir gott samstarf í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við höfum setið og farið vel yfir þetta mál. Ég ætla að byrja á því að segja að ég fagna mjög þessum breyttu áherslum hjá Samfylkingunni hvað þessa lagaumgjörð varðar og er glöð að sjá að flokkurinn tekur undir mikilvægi þess að auka skilvirknina í málaflokknum og jafnframt að færa lög okkar Íslendinga nær því sem tíðkast í nágrannaríkjunum okkar. Eins og fram kemur ágætlega í þessu nefndaráliti þá er það líka þannig að Ísland hefur skorið sig úr þegar kemur að hlutfallslegum fjölda umsókna frá einstaklingum sem njóta verndar í öðrum Evrópuríkjum og mér finnst gott að við séum fleiri og fleiri í þessum sal að sameinast um mikilvægi þess að taka á því, því að verndarkerfið er svo mikilvægt og það er svo mikilvægt fyrir fólk sem er í raunverulegri þörf fyrir vernd. En það er erfitt að halda því fram að fólk sem er með vernd í öðru ríki sé í þörf fyrir vernd á Íslandi líka. Þannig að ég fagna því mjög.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í breytingartillöguna, ég er ekki alveg viss um að ég skilji hana rétt. Ef ég skil hv. þingmann rétt þá er ekki verið að leggja til afnám 2. mgr. 36. gr. heldur eingöngu að taka út það er varðar sérstakrar aðstæður og segja bara sérstök tengsl, þ.e. að aðilar geti hér fengið efnismeðferð, ef ég skil þetta rétt, hafi þeir sérstök tengsl við landið. En þetta á þó ekki við í verndarmálum. Skil ég hv. þingmann rétt? Það er eðlilegt, enginn skilur kannski verndarmál, en ef fólk er með vernd í öðru ríki þá myndi það ekki falla undir það sem (Forseti hringir.) hv. þingmaður og flokkur hans er að leggja til hér núna, heldur bara þá í rauninni ef fólk hefur komið annars staðar við og er þar af leiðandi að óska hér eftir meðferð máls.