útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar fyrir að spyrja út í þessa tillögu. Jú, þetta er rétt skilið hjá hv. þingmanni. Ég má samt til með að taka fram að við styðjum þær breytingar sem gerðar eru á ákvæðinu sem lúta t.d. að málsmeðferðartímafresti sem hefur gilt, þessi 12 mánaða regla svokallaða sem við teljum að hafi því miður verið til þess fallin að setja ákveðna pressu á kerfið, þannig pressu að mér finnst mikilvægt að koma því að vegna þess að það hefur stýrt ákvörðunartöku út í ákveðna botnlanga, því að þegar klukkan er næstum orðin þá fara allt í einu málsmeðferðarreglurnar svolítið fyrir bí.
Ég vísa hérna til 38. gr. norsku löggjafarinnar sem er sú fyrirmynd sem við sækjum í. Við teljum þetta ákveðna millileið. Við teljum þetta ákvæði vera til þess fallið að við náum sátt um þær aðstæður sem eru uppi og það sé auðveldara að leggja hlutlægt mat á þetta í þessum málaflokki en sérstakar aðstæður. Sérstök tengsl — það hefur auðvitað verið nýtt hér á landi, ef fólk sem hefur t.d. ríkar umönnunarskyldur gagnvart börnum sem eru hér til staðar þá er það til bóta. En mig langar hins vegar til að nýta mér aðstöðuna hérna og koma inn á það sem ég fór ekki inn á áðan í andsvari mínu við hv. þingmann Pírata. Mér finnst athyglisvert að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagðist t.d. ekki gegn afnámi ákvæðisins, 2. mgr. 36. gr., eins og það lítur út núna í lögum sem segir mikið um það (Forseti hringir.) að við verðum að leggja meiri áherslu á einstaklingsbundna úrlausn þessara mála í móttökuríki hverju sinni.