154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða spurningu. Við vísum til 32. gr. norsku útlendingalöggjafarinnar varðandi breytingar sem við leggjum til á 2. mgr. 36. gr. Það er lykilatriði að hafa það á hreinu að norrænn samanburður þarf að fara fram með gagnrýnum hætti. Hér er hann notaður sem skálkaskjól mögulega í einhverjum tilfellum þegar verið er að bregðast við ástandi sem einfaldlega á sér ekki neina fyrirmynd í norrænum rétti líkt og gerðist hér í tengslum við þjónustusviptinguna í fyrravor. Við höfum alltaf tekið fyrirmyndir úr norrænum rétti í íslenskum rétti og útlendingalögin eiga ekkert að vera undanskilin þar. Það á ekkert að vera neitt tabú að tala um að sækja sér fyrirmyndir þangað. Það á sömuleiðis ekkert að vera áfellisdómur yfir stjórnmálaflokki sem talar um að sumar leiðir henti betur á Íslandi en í Noregi eða í Danmörku. Ég sé ekki alveg hvaða mótsögn á að felast í því að við séum ekki hlynnt þeirri útfærslu sem ríkisstjórnin leggur hér upp með í tengslum við fjölskyldusameiningar og að skilyrðin taki t.d. bara til tiltekinna verndarflokka en ekki allra. Biðtíminn almennt hefur gefist illa og við getum lært af Norðurlöndunum að þessu leyti, eigum nefnilega líka að gera það. Við eigum líka að taka reynsluna sem þau kunna að búa yfir hverju sinni og segja: Hér er hægt að gera betur. Það svarar vonandi spurningunni. Ég held að hljóð og mynd fari vel saman hjá okkur í Samfylkingunni í þessu mikilvæga máli. (Forseti hringir.) Og varðandi það hvort við viljum að þessu frumvarpi sé hafnað eða það samþykkt þá viljum við að það sé samþykkt með þeim breytingartillögum sem við leggjum til í þessu máli.