154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:26]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Helstu breytingarnar sem eru lagðar til í þessu frumvarpi varða brottfellingu ákvæðis um skyldu stjórnvalda til að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða sérstakra ástæðna, þrengingu á skilyrðum fyrir fjölskyldusameiningu, styttingu gildistíma dvalarleyfa, breytingar á skipan og störfum kærunefndar útlendingamála og þrengingu á skilyrðum fyrir leyfi til atvinnu meðan á umsóknarferli um alþjóðlega vernd stendur.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að þær breytingar sem lagðar eru til miði m.a. að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum, þá einkum annars staðar á Norðurlöndunum. Þá sé einnig stefnt að því að auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar og tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns. En það er algerlega óljóst hvernig þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu muni ná tilskildum markmiðum nema á þann hátt að samræma íslenskt regluverk að einhverju leyti við danska löggjöf sem hvorki þjónar þeim tilgangi að auka skilvirkni né tryggja hagræðingu. Þvert á móti bendir allt til þess að umrædd ákvæði muni bæði auka álag á kerfið og auka kostnað. Samkvæmt þeim gögnum sem fylgja málinu og umsögn frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna eru auk þess líkur á að umræddar breytingar hafi alvarleg neikvæð áhrif á andlega heilsu fólks, sérstaklega barna og ungmenna, og vinni gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um inngildingu.

Byrjum á núgildandi 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga sem kveður á um að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái vernd hér eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þetta ákvæði hefur á undanförnum árum verið túlkað sífellt þrengra af hálfu Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála og er því sjaldan beitt í framkvæmd en nú á að taka út þetta mikilvæga ákvæði sem þýðir að eina von þeirra umsækjenda sem hafa sérstök tengsl við landið eða hafa sérstakar ástæður fyrir áframhaldandi dvöl á Íslandi er að Útlendingastofnun meti ástand og aðstæður í móttökuríki þannig að líf eða frelsi viðkomandi sé í hættu, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna, en því ákvæði hefur bara aldrei verið beitt í framkvæmd. Því hefur aldrei verið beitt.

Af hálfu ráðuneytisins hefur því verið haldið fram að ástæðan fyrir því að 3. mgr. hafi aldrei verið beitt sé sú að 2. mgr. sé víðtækari og því hafi ekki komið til beitingar 3. mgr. en þau rök standast ekki skoðun þar sem sambærilegum fyrirvara í eldri lögum var heldur aldrei beitt gagnvart einstaklingum sem veitt hefur verið vernd í öðru ríki þrátt fyrir að ákvæði á borð við 2. mgr. væri þar ekki fyrir að fara. Þetta er í raun ástæðan fyrir því að 2. mgr. 36. gr. laganna var sett í lög á sínum tíma, út af því að 3. mgr. var ekki beitt.

Með brottfalli ákvæðisins er eina tæki stjórnvalda til að líta til persónulegra aðstæðna umsækjenda afnumið sem útilokar í reynd möguleika fólks í ákveðinni stöðu á að fá umsókn sína tekna til efnismeðferðar á Íslandi þrátt fyrir aðkallandi ástæður. Það er einnig vert að nefna að það gengur þvert á markmið frumvarpsins um skilvirkni að fella ákvæðið úr gildi þar sem í því er einnig að finna hvata til stjórnvalda að ákvarða í málum sem þessum innan 12 mánaða.

Það er alveg ljóst að álag á Útlendingastofnun mun ekki minnka við þessa breytingu. Líklegast er að það aukist eða færist þá alla vega yfir á önnur svið starfseminnar. Ef markmiðið er að auka skilvirkni er því markmiði betur mætt með því að standa betur að rekstri stofnunarinnar og starfseminnar, t.d. með því að tryggja aðstæður og þjálfun fyrir starfsfólk og aukinn mannskap með sérþekkingu á stjórnsýslurétti og málefnum útlendinga.

Forseti. Í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar er staðhæft að tímamörk í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skapi hvata og togstreitu í kerfinu þar sem umsækjendur hafi hag af því að tefja mál sín. Ekki einungis er þetta rangt, forseti, enda skýrt tekið fram í ákvæðinu að tímamörkin gildi ekki ef um tafir á ábyrgð umsækjanda sjálfs er að ræða, heldur lýsir þessi staðhæfing fordómum og skilningsleysi á stöðu fólks á flótta. Það kýs enginn að lifa í algjörri óvissu til lengri tíma.

Svo er það réttur fólks á flótta til að sameinast fjölskyldu sinni en réttur þessi er skýr samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist. Að þrengja skilyrði fjölskyldusameiningar fólks á flótta er bæði ómannúðlegt og algerlega tilgangslaust. Í frumvarpinu er lagt til að handhafi viðbótarverndar skv. 2. mgr. 37. gr. þurfi að bíða í tvö ár og fá endurnýjun dvalarleyfis síns áður en viðkomandi getur sótt um fjölskyldusameiningu. Fólk sem flýr viðvarandi stríðsástand eða almennt hættuástand í heimaríki en sætir ekki persónulegum ofsóknum þar í landi fær almennt viðbótarvernd en ekki stöðu flóttamanns skv. 1. mgr. 37. gr. laganna. Það vekur athygli að ekki er lagt til að fólk með stöðu flóttamanns sæti sömu þröngu skilyrðum fyrir fjölskyldusameiningu og handhafar viðbótarverndar. Hér á að mismuna þeim sem fá viðbótarvernd og um er að ræða grófa og ómálefnalega atlögu að rétti fólks til sameiningar við sína allra nánustu. En rétt er að árétta að umræddur réttur til fjölskyldusameiningar á einungis við um maka, ólögráða börn viðkomandi og aldraða foreldra. Er því þegar um afar þröngan rétt að ræða. Í staðinn fyrir að nýta sér löglegar og öruggar leiðir til að koma fjölskyldum sínum úr hættuástandi er verið að ýta undir það að fólk fari ólöglegar leiðir, nýti sér smyglara og setji sjálft sig og börnin sín í mjög hættulegar aðstæður. Við höfum séð það í rannsóknum, og þetta hefur verið skrásett, tilfelli þess að börn séu tekin í gúmmíbátum og drukkni í kjölfar þess að lönd eins og Danmörk hafa farið þá leið að þrengja að fjölskyldusameiningu. Þetta eru afleiðingar þessarar ákvörðunar sem við erum að taka.

Breytingin sem lögð er til í frumvarpinu ýtir undir það að einstaklingar sem veitt hefur verið viðbótarvernd hér á landi bíði í von og óvon eftir því að geta óskað eftir sameiningu við fjölskyldu sína sem á þessum tíma gæti orðið fyrir varanlegum og óafturkræfum skaða. Það er með öllu óásættanlegt að lögfesta slíka mismunun á milli einstaklinga með stöðu flóttamanns og þeirra sem njóta viðbótarverndar á þennan hátt. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna bendir á að báðir hópar standa frammi fyrir sömu áskorunum og í reynd snúi handhafar viðbótarverndar almennt ekki fyrr heim en handhafar alþjóðlegrar verndar. Stofnunin bendir einnig á að langvarandi aðskilnaður fjölskyldna á flótta geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir andlega líðan þeirra, fyrir aðlögun að verndarríkinu, fyrir virkni í samfélaginu og enduruppbyggingu lífs þeirra.

Fjölskyldusameiningar eru lykilþáttur í inngildingu þessa hóps og er sú nálgun sem lögð er til í frumvarpinu einungis til þess fallin að tefja eða koma í veg fyrir inngildingu og gera það að verkum að fólk einangrist frekar frá samfélaginu. Við erum að jaðarsetja fólk. Þrenging skilyrða til fjölskyldusameiningar grefur þannig undan þeim markmiðum sem ríkisstjórnin hefur sett sér um inngildingu.

Í minnisblaði ráðuneytisins til allsherjar- og menntamálanefndar viðurkennir ráðuneytið að biðtími fyrir fjölskyldusameiningar handhafa viðbótarverndar geti haft neikvæð áhrif á inngildingu þeirra. Með þessari viðurkenningu ráðuneytisins er búið að afhjúpa þá staðreynd að breytingarnar snúast ekki að neinu leyti um mannúð, skilvirkni, hagræðingu né annað en að senda þau skýru skilaboð til fólks á flótta að það sé ekki velkomið hér og að stjórnvöld skeyti engu um velferð þess. Kostnaðurinn af þessu skeytingarleysi gæti orðið gríðarlegur til lengri tíma litið því farsæl inngilding vinnur gegn jaðarsetningu, sem ýtir undir öryggi samfélagsins. Skammsýni meiri hlutans, sú er birtist m.a. í þessari breytingu, gæti því orðið samfélaginu öllu dýrkeypt.

Þá vil ég líka benda á að þessi breyting færir íslensk lög ekkert nær löggjöf í öðrum Evrópuríkjum enda hafa fæst þeirra gert biðtíma að skilyrði fyrir veitingu fjölskyldusameiningar. Hvergi er því að finna haldbær rök fyrir slíkum tímamörkum sem lögð eru til í frumvarpinu, hvorki í greinargerð né minnisblöðum ráðuneytisins. Ítrekað hefur verið kallað eftir frekari rökstuðningi frá ráðuneytinu án árangurs. Það er fullkomlega rökrétt að fylgja fordæmi annarra ríkja þegar um er að ræða löggjöf sem reynst hefur vel en það er engin ástæða til að herma eftir löggjöf sem veldur einungis skaða og vinnur gegn þeim markmiðum sem stefnt er að.

Þá er næsta breytingin sem ég vil fjalla um, forseti, stytting á gildistíma dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar, viðbótarverndar eða mannúðarsjónarmiða. Hér er enn önnur breyting sem grefur undan mikilvægu markmiði ríkisstjórnarinnar um inngildingu. Stytting gildistíma dvalarleyfa mun enn fremur ekki auka skilvirkni heldur þvert á móti auka álag á Útlendingastofnun við afgreiðslu umsókna um endurnýjun dvalarleyfa. Óljóst er hver tilgangurinn er með breytingunni annar en að senda fólki þau skilaboð að það sé ekki raunverulega velkomið hér á landi sem bæði aftrar inngildingu verulega og ýtir undir óvissu og kvíða í lífi fólks sem þegar er að takast á við erfiðleika tengda flótta frá heimalandi, með slæmum og hugsanlega alvarlegum afleiðingum fyrir bæði fólkið sjálft og samfélagið. Þetta er alger óþarfi.

Mikil áhersla er lögð á það í frumvarpinu að samræma íslenskt regluverk í málaflokknum við löggjöf annarra Norðurlanda. Hvað varðar gildistíma dvalarleyfa á grundvelli stöðu flóttamanns, viðbótarverndar eða mannúðarsjónarmiða eru Norðurlandaþjóðirnar ekki samræmdar hvað þetta varðar. Þetta er mismunandi hjá þeim öllum. Það getur ekki staðist að tilgangur breytinganna sé að samræma íslenskt regluverk við regluverk annarra þjóða sem er ekki betur samræmt en þetta, auk þess sem ekkert liggur fyrir um að stytting gildistíma dvalarleyfa hafi gefið góða raun. Ég hefði haldið að það ætti að vera lykilpunktur, í alvöru, þegar við erum að setja lög að við séum að skoða hvort lögin hafi gefið góða raun. Hverju eru þau að skila til samfélagsins? Af hverju í ósköpunum erum við annars að taka þau upp? Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna varar við afleiðingum slíkra breytinga á inngildingu handhafa alþjóðlegrar verndar og viðbótarverndar í skriflegum svörum sínum til allsherjar- og menntamálanefndar. Stofnunin varpar þar ljósi á hvernig tímabundin dvalarleyfi hafi neikvæð áhrif á geðheilbrigði barna og ungmenna sem og neikvæð áhrif á inngildingu verndarhafa þar sem þau upplifa að stuttur gildistími hafi töluverð neikvæð áhrif á framtíðarmöguleika þeirra í verndarríkinu, skiljanlega.

Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið meti það sem svo að gildandi lög gangi einnig of langt í því að veita hælisleitendum heimildir til atvinnu á meðan umsókn þeirra er í vinnslu stjórnvalda. Ég ætla aðeins að staldra við þessa setningu og já, ég ætla að endurtaka hana: Ráðuneytið metur það sem svo að gildandi lög gangi of langt í því að veita hælisleitendum heimildir til atvinnu á meðan umsókn þeirra er í vinnslu stjórnvalda. Eins segir að það gangi gegn markmiðum laga um sjálfviljuga heimför að leyfa einstaklingi sem hlotið hefur synjun á umsókn sinni frá Útlendingastofnun að starfa á almennum vinnumarkaði samhliða undirbúningi brottvísunar hans. Ráðuneytið tíundar einnig að einstaklingur í þeirri stöðu sé í ólögmætri dvöl á þeim tímapunkti og geti eftir atvikum fengið aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Forseti. Þetta er rugl. Þetta er algjört rugl og með öllu ómannúðlegt að neyða hælisleitendur sem hlotið hafa neikvæða niðurstöðu frá Útlendingastofnun til að hverfa frá vinnumarkaðnum. Hverjum þjónar það nákvæmlega? Hælisleitandi sem hlotið hefur synjun frá Útlendingastofnun á fullan rétt á því að kæra niðurstöðu stofnunarinnar og er því ekki í ólögmætri dvöl. Hann er það ekki. Biðin eftir úrskurði frá kærunefnd útlendingamála getur verið löng og tekið verulega á andlega heilsu fólks sem hefur fram að því unnið fyrir sér og haft eitthvað fyrir stafni. Það er bæði mannúðlegra og skilvirkara að heimila umsækjendum að vinna þar til lokaniðurstaða fæst í mál þeirra, þ.e. þegar úrskurður berst frá kærunefnd, auk augljósra jákvæðra áhrifa fyrir samfélagið af því að fólk sé í virkni en ekki fullkomnu aðgerðaleysi algerlega að óþörfu.

Ég hef verulegar áhyggjur af þeirri staðhæfingu ráðuneytisins að hælisleitandi sé kominn í ólögmæta dvöl strax í kjölfar ákvörðunar Útlendingastofnunar um synjun og legg áherslu á að rétt skal vera rétt. Synjun umsóknar á fyrsta stjórnsýslustigi þýðir ekki að viðkomandi sé ólögmætri dvöl, enda kæra flestir neikvæða niðurstöðu stofnunarinnar til kærunefndar í þeirri von að fá leyfi til að dveljast hér löglega og taka þátt í samfélaginu sem fullgildir meðlimir þess. Undirbúningur brottvísunar eða frávísunar hefst ekki fyrr en eftir að lokaniðurstaðan berst, sem er að jafnaði ekki fyrr en kærunefnd útlendingamála hefur úrskurðað í málinu. Rök ráðuneytisins fyrir þessari breytingu standast ekki skoðun. Það á að leyfa umsækjendum í þessari stöðu að vinna fyrir sér þar til lokaniðurstaða í máli þeirra hefur borist. Annað er bara rökleysa og óþarfakostnaður fyrir ríkissjóð fyrir utan það hvað við erum að koma illa fram við fólk.

Forseti. Ég geri einnig athugasemdir við breytingar á kærunefnd útlendingamála í nefndarálitinu mínu en fer kannski betur yfir það í annarri ræðu því mig langar að fjalla aðeins um það sem eru að mínu mati raunverulegu ástæðurnar fyrir þessu frumvarpi og það er svo sem ekkert leyndarmál því að meiri hlutinn og ríkisstjórnin, dómsmálaráðherra, hafa ekkert farið leynt með hverjar séu raunverulegu ástæðurnar fyrir þessu frumvarpi, skammast sín ekkert fyrir það, sem er að vissu leyti áhugavert. Dómsmálaráðherra hefur lagt mikla og aukna áherslu á að við séum með séríslenskt regluverk í útlendingamálum sem virki sem sérstakt aðdráttarafl. Þetta hefur verið kallað „pull factor“ í nefndinni, afsakið slettuna, forseti, sérstakt aðdráttarafl sem fella þarf brott hið snarasta. Ýjað er að því að útlendingar leiti frekar hingað vegna linara regluverks í útlendingamálum miðað við önnur Evrópuríki — ekki ýjað að því beint, það er enginn að ýja að því, þetta er bara sagt beint út, og að fólk á flótta taki á þeim forsendum meðvitaða ákvörðun um að koma sér hingað til lands frekar en til annarra landa, út af regluverkinu.

Stöldrum aðeins við og íhugum þessa vitleysu, að fólk á flótta sé að kynna sér regluverk mismunandi landa í Evrópu í leit að einhverjum ívilnandi ákvæðum sem muni grípa það umfram lög annarra landa. Þessi tilfinning ráðherra er ekki byggð á þekkingu eða trúverðugum upplýsingum heldur áróðri og ég vil segja fordómum, það bara blasir þannig við mér, alveg eins og rökin fyrir nánast öllum breytingum frumvarpsins. Þær eru byggðar á lofti og óljósri von um að ef við samræmum lögin okkar við lægsta samnefnara á Norðurlöndunum þá fari fólk bara eitthvert annað. Ef við erum nægilega vond þá kannski fer fólk bara eitthvert annað, en það er bara ekki raunhæft, forseti. Grunngildi íslensks samfélags byggjast á virðingu fyrir mannréttindum, á virðingu fyrir lýðræði, mannlegri reisn og umburðarlyndi, jafnrétti, samstöðu og samkennd. Íslendingar eru stoltir af því að vera friðsæl og herlaus þjóð. Landkynningin út á við setur fram ákveðna ímynd af friðsamlegu jafnréttisparadísinni Íslandi þar sem er enginn her, glæpatíðni er lág, hinsegin fólki er tekið opnum örmum, atvinnuleysi er lítið og jafnrétti kynjanna er virt, svo fátt eitt sé nefnt. Að sjálfsögðu vill fólk koma hingað. Það hefur ekkert með regluverk í útlendingalögum að gera, fólk vill koma hingað. Það er bara mjög skiljanlegt að Ísland laði að og við ættum að vera stolt af því en ekki grafa undan öllu sem hefur gert okkur að kyndilberum á alþjóðavettvangi, öllu sem við erum stolt af.

Manneskjur eru aldrei vandamál, forseti, aldrei, heldur er hver manneskja tækifæri fyrir samfélagið til að auðgast, til að vaxa og dafna. Fólk er ekki byrði á samfélögum. Við vitum það. Samfélög eru fólk. Það er fólkið sem skiptir máli. Þetta frumvarp felur í sér breytingar sem grafa undan og ganga gegn grunngildum samfélagsins okkar, grunngildum sem ættu að tryggja það að við séum ekki að jaðarsetja fólk af ásettu ráði heldur lyfta því upp, valdefla og leyfa því að blómstra, samfélaginu öllu til góðs. Ef samfélagið tekur vel á móti fólki þá þykir fólki vænt um samfélagið og gefur til baka. Þannig virkar bara mannlegt eðli.

Það er miður að núverandi meiri hluta skorti framsýni til að horfa til þess hvernig við getum sem best aðstoðað og hvatt fólk til þátttöku í samfélaginu og sett alvörufjármagn og -krafta í það verkefni frekar en að sóa kröftum og fjármunum í að búa til leiðir til að vera nægilega vond við fólk í þeirri von að það komi ekki hingað. Þessi aðferðafræði er keimlík því að stinga hausnum í sandinn. Ástandið sem fólk er að flýja er svo margfalt ógeðslegra en við getum nokkurn tímann orðið. Við verðum alltaf betri kostur. Fólk mun alltaf halda áfram að koma hingað og að öllum líkindum mun ástandið í heiminum stuðla að fjölgun. Fólki sem kemur hingað mun líklegast fjölga. Það er allt sem bendir til þess, algerlega óháð því hversu vond við erum við fólkið.

Spurningin sem við þurfum að spyrja okkur er ekki hvort hér verði fjölmenningarsamfélag heldur hvernig fjölmenningarsamfélagi við viljum byggja grunninn að, samfélagi mannréttinda, lýðræðis, mannlegrar reisnar og umburðarlyndis, jafnréttis, samstöðu og samkenndar, eða samfélagi mismununar, skautunar, jaðarsetningar, tengslaleysis og hræðslu. Það er þess vegna sem markmið ríkisstjórnarinnar um inngildingu skipta öllu máli og eru lykillinn í farsælli lausn í þessum málaflokki. Þetta frumvarp grefur undan þeim markmiðum og það er miður og það er eitthvað sem við eigum ekki að gera. Setjum rísorsana frekar í hitt, í inngildinguna. Tökum vel á móti fólki. Þess vegna leggjum við Píratar til að þessu máli verði vísað aftur til ráðuneytisins því að það er alger óþarfi og þetta er bara að fara að ja, hvað skal segja — valda vanda, ef svo mætti segja. Þetta er ekki að fara að bæta neitt. Þetta er ekki fara að svara neinu af því sem verið er að kalla eftir að verði bætt, ekki neitt. Þetta er alger óþarfi.