154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það kom svo sem ekkert á óvart í þessari ræðu af hálfu Pírata. Við erum vond við fólk af því að við tökum ekki á móti öllum, það voru skilaboðin frá Pírötum. Og hér er aukið álag og aukinn kostnaður sem fylgir þessu frumvarpi, sem er að sjálfsögðu rangt. Það er verið að draga úr kostnaði með þessu frumvarpi og það er verið að minnka álagið vegna þess að það er að sliga sveitarfélögin hér í kringum okkur, m.a. á Suðurnesjum. Það er lágmark að hv. þingmaður fari með rétt mál í þessum efnum. Er þetta eins og var sagt hér í ræðu Pírata, hv. þm. Arndísar Önnu Gunnarsdóttur, þegar hún var að ræða um álagið? Ef við bara förum til Suðurnesja eru kennarar þar að hverfa frá störfum vegna álags, m.a. vegna mikils fjölda innflytjenda sem sækja skólana, og það eru ekki lausar íbúðir á Suðurnesjum fyrir Grindvíkinga, það er ekkert húsnæði laust vegna þess að svo margir hælisleitendur búa á Suðurnesjum. En hv. þingmaður sagði hér áðan að þetta væri allt óstaðfest vitleysa af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Ég krefst þess að hér sé farið með rétt mál, frú forseti. Menn geta ekki komið hingað upp með einhverjar staðlausar yfirlýsingar um að það sé ekkert álag þegar allir vita það að við þurfum að draga úr þeim fjölda sem hingað sækir til landsins og sækir um hæli. Við getum einfaldlega ekki haldið áfram á þessari vegferð vegna þess að kostnaðurinn er kominn upp úr öllu valdi og álagið er að sliga samfélögin í kringum okkur. Það hefur verið staðfest.

Ég vil bara að lokum spyrja hv. þingmann að því hvort það sé virkilega svo að það sé ekkert álag á Suðurnesjum, (Forseti hringir.) eins og hv. þingmaður sagði hér. Hefur hv. þingmaður heimsótt bæjarstjórn Reykjanesbæjar og rætt við (Forseti hringir.) hana um þessi mál og eru svörin frá bæjarstjórninni að það sé ekkert álag, ekkert álag?