154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:50]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Vond við fólk vegna þess að það er ekki tekið á móti öllum — nei, ég sagði það ekki. Ég sagði: Við erum vond við fólk vegna þess að við erum ekki að taka á móti fjölskyldunum þeirra. Í staðinn fyrir að búa til löglegar og öruggar leiðir fyrir fólk til þess að ferðast í öryggi frá stríðshrjáðum löndum erum við að neyða fólk til að fara mjög hættulegar leiðir með fjölskylduna sína og börnin sín, út af því að við erum að þrengja að rétti þeirra til fjölskyldusameiningar. Það er það sem ég er að tala um.

Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að bregðast við þessari ræðu því að mér fannst hún eiginlega frekar ógeðfelld að mörgu leyti. En álag á sveitarfélögin — af hverju förum við ekki norsku leiðina t.d. og dreifum miklu meira af flóttafólki í kringum landið í staðinn fyrir að allir lendi á sama stað? Er það ekki líka bara álagið sem er í gangi þegar kemur að menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu? Er þetta ekki bara merki um stórkostlegt skeytingarleysi stjórnvalda og ríkisstjórnarinnar þegar kemur að því? Það átti að vera búið að styrkja þessi kerfi, fjármagna og bregðast við vanda fyrir löngu síðan og svo núna á einhvern veginn að láta eins og það sé þessum örfáu hælisleitendum sem koma til landsins að kenna að það sé svona mikið álag. En það er ekki þannig. Þetta eru allt ákvarðanir stjórnvalda. Þetta eru allt ákvarðanir, slæmar ákvarðanir sem hafa verið teknar sem hafa leitt okkur á þennan stað og það er auðvelt að laga það. Þetta frumvarp sem við erum að fjalla um núna lagar að engu leyti þetta sem hv. þingmaður er að tala hérna um, ekkert af því.