154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:52]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get ekki séð annað en að álagið fylgi auknum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd og það er ekkert við því að gera annað en að reyna að draga úr þeim fjölda sem hingað kemur. Það gerum við með því að samræma regluverkið sem er í kringum okkur og það er einn tilgangur þessa frumvarps, að samræma regluverkið svo að við séum ekki einhvers konar segull á stóran hóp fólks. Við erum að taka á móti fólki og við erum að reyna að gera það vel en það eru takmörk fyrir því hvað er hægt að taka á móti mörgum. Ég held að það sjái það allir og viti það allir. Það er ekkert sem réttlætir það að við eigum að hafa annað regluverk heldur en t.d. bara löndin í kringum okkur. Það væri gott að fá svar frá hv. þingmanni um það hvaða rök liggi að baki þeirri hugmyndafræði hv. þingmanns að við eigum að hafa annað regluverk heldur en löndin í kringum okkur. Það væri bara gott að fá svar við því. Hvers vegna eigum við að skera okkur úr, fámennasta þjóð Evrópu? Við höfum gott velferðarkerfi, eitt það besta í Evrópu, en ef fjöldinn heldur áfram að vaxa eins og hann hefur gert þá kemur að því að velferðarkerfið stendur ekki undir þeim hópi. Þess vegna þarf að bregðast við og það er verið að gera það með þessu frumvarpi.

Mig langar einnig að spyrja hv. þingmann aðeins um það þegar hún talaði um farsæla inngildingu, hvort hún sé ekki sammála mér í því að það að læra tungumálið, íslenskuna, sé partur af því að hér verði farsæl inngilding, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því að við eigum að reyna að auka íslenskukennslu til þeirra sem koma hingað til landsins og eru að sækja hér um hæli og fá svo dvalarleyfi, að það verði lögð áhersla á að þeir læri tungumálið. Ég er persónulega þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt og að það sé einn af þessum farsælu þáttum þegar kemur inngildingu að læra tungumálið. Það væri fróðlegt að fá svar hv. þingmanns við því og svo (Forseti hringir.) auk þess hvers vegna hún telur að við eigum ekki að fylgja regluverki sem er í kringum okkur, eins og á Norðurlöndunum.