154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Þessi ræða og spurning fór nú bara út um allar trissur. Ég hef enga trú á því, og hef ekki séð neinar vísbendingar um það eða gögn sem styðja það eða sýna fram á það, að þetta frumvarp eða þessar aðgerðir muni að nokkru leyti fækka umsóknum hérna eða minnka eitthvað álag. Það er bara ekkert sem bendir til þess. Það sem mun gerast aftur á móti er að fólki mun líða verr. Við munum stuðla að því að fólki muni líða illa og líða verr og þá er einmitt miklu erfiðara fyrir fólk að læra íslensku. Ef þú ert hér með kvíða yfir því hvort börnin þín muni lifa af í stríðshrjáðu landi og færð ekki fjölskyldusameiningu þá ert þú ekkert að fara að læra íslensku. Það er ekki uppskrift að farsælli inngildingu hér inn í landið.

Varðandi að gera íslenskuna aðgengilegri — jú, sjálfsagt, ég er mjög hlynnt því, það ætti að gera það. En mér skilst að það hefðu verið greidd atkvæði um þetta í fjárlögum og hv. þingmaður hefði kosið gegn því að setja fjármagn í það. Það þarf nefnilega að setja fjármagn í svona hluti. Ef þú ætlar að gera íslensku aðgengilegri þá þarf að fjármagna það. Ef við viljum að kerfin okkar virki þá þurfum við að fjármagna þau. Við getum ekki bara staðið hér og öskrað: Þetta er allt útlendingum að kenna, að öll kerfin séu að hrynja og það sé mikið álag alls staðar. Kerfin eru að hrynja út af því að það er ekki verið að fjármagna þau. Það er ekki verið að styrkja þau og styðja við þau. Það er ekkert að fólkinu sem kemur hingað en það er aftur á móti eitthvað mikið að ríkisstjórninni sem tekur slæmar ákvarðanir trekk í trekk.