154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:05]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta allsh.- og menntmn. (Bergþór Ólason) (M):

Virðulegur forseti. Ég vil fagna því að þetta mál sé komið hér til 2. umræðu og við í þingflokki Miðflokksins styðjum málið þó að okkur þyki kannski að óþörfu vera stigið til baka með ákveðin atriði sem voru í málinu eins og það var lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda í upphafi, áður en það kom hingað inn til þingsins. En þó að skrefin séu að okkar mati kannski ívið of lítil, ívið of stutt, þá er þetta mál til bóta og við fögnum því að það sé komið hér inn. Í raun þykir mér skipta máli að það sé hér inni í dag áður en kemur að hléi vegna forsetakosninga, svona í ljósi þess að maður óttaðist að málið gæti dagað uppi yrði 2. umræða geymd fram yfir forsetakosningar af ástæðum sem fólk getur getið sér til um hverjar eru.

Umræðan hverfist auðvitað að miklu leyti um þessar séríslensku málsmeðferðarreglur, eðlilega. Þær hafa verið að okkar mati ástæða þess gríðarlega fjölda umsókna um alþjóðlega vernd hér á landi. Við þekkjum hlutfallstölurnar. Það er tugfaldur umsóknafjöldi hér á landi samanborið við nágrannaþjóðir okkar. Það er nú stundum sagt í gríni að það blasi við að fólk sé ekki að sækja hingað í veðrið. En það er auðvitað regluverkið sem að hluta til orsakar það að þessir seglar, eins og það er kallað á ensku, „pull factors“, með leyfi forseta, hafa þau áhrif að sóknin hingað er jafn mikil og raunin er. Ég held að það hljóti að blasa við öllum sem horfa á málin af einhverri yfirvegun og sanngirni að íslenskt samfélag þolir ekki til lengdar þann mikla fjölda sem hingað hefur komið á undanförnum árum. En á sama tíma og þetta er sagt þá verðum við líka að fara að gæta okkur á því að rugla ekki sífellt saman og grauta saman vinnumarkaðshlutanum sem hingað sækir og síðan verndarkerfinu. Ég held að það sé það sem geri verndarkerfinu og afstöðu fólks til þess mest ógagn, þegar þessu tvennu er grautað saman. Verndarkerfið hefur ákveðnu hlutverki að gegna og það verður að segjast að það blasir við að á löngum köflum hefur verið þrýstingur vegna annarra heldur en þeirra sem með augljósum hætti falla undir það regluverk. Þetta hefur síðan áhrif auðvitað, eins og við þekkjum, velferðarkerfin eru yfirkeyrð hvort sem horft er til menntakerfisins og stuðnings þar, heilbrigðiskerfisins, húsnæðismálin eru að hluta til í þeirri stöðu sem nú er uppi vegna þessa og þá er ég að tala um heildarmyndina hvað innflæðið varðar og svo mætti áfram telja. Það skiptir því gríðarlega miklu máli að gera það sem hægt er til að samræma íslenska kerfið því sem gerist í nágrannalöndum okkar. Við í Miðflokknum höfum horft sérstaklega til Danmerkur í þeim efnum, þar hafi menn náð býsna góðri stjórn á landamærunum og við ættum að horfa með hvaða ákveðnustum hætti að mínu mati til þess sem þar hefur tekist vel. Síðan eru hinar þjóðir Norðurlandanna með sína útfærsluna hver gagnvart ákveðnum atriðum en ég held að við ættum hvað breiðu línurnar varðar að horfa til frænda okkar í Danmörku.

Það urðu nokkur vonbrigði, eins og ég sagði í byrjun, með þær breytingar sem urðu frá því að málið var lagt fram í samráðsgátt þangað til það var lagt fram í þinginu og hæstv. ráðherra mælti fyrir því. Þar féllu út atriði sem voru til þess ætluð að draga úr þessum séríslensku áhrifum. Í þessu áliti sem ég mæli hér fyrir frá 4. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, undir það rita ég, leggur 4. minni hluti til að tveimur af þeim atriðum sem féllu út frá samráðsgátt til framlagningar verði bætt inn aftur. Þau snúa annars vegar að talsmannaþjónustu í málum um alþjóðlega vernd og hins vegar niðurfellingu 18 mánaða tímamarks við málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd.

Hvað talsmannaþjónustuna varðar leggur 4. minni hluti til að gerðar verði breytingar á 30. gr. laga um útlendinga sem varðar endurgjaldslausa talsmannaþjónustu á báðum stjórnsýslustigum og leggur til að Útlendingastofnun verði gert heimilt að afgreiða tiltekin mál að jafnaði án þess að talsmaður sé skipaður.

Hitt atriðið, sem við leggjum til að verði bætt inn með breytingartillögu, varðar svokölluð 18 mánaða tímamörk. Það er lagt til að með fyrirliggjandi frumvarpi verði felld brott málsmeðferðarregla 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sem mælir fyrir um að heimilt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða lögbundinna tímamarka eftir að hann sótti um alþjóðlega vernd.

Þessi tvö atriði eru ágætlega rökstudd í málinu eins og það var fyrst kynnt í samráðsgátt þannig að rökstuðningurinn er þeim sem það skoða kunnur. Við leggjum hér til með þessum tveimur breytingartillögum að þessi atriði komi aftur inn í frumvarpið sem mun gera það þéttara, ef svo má segja, og styðja í báðum tilvikum við markmið lagasetningarinnar. Ég tel að það væri til bóta að þessi atriði kæmu hér inn aftur í meðferð Alþingis við 2. umræðu í þinginu.

Ég ætla ekki að láta þetta verða lengra hjá mér að þessu sinni. Ég legg þessar breytingartillögur hér fram til meðferðar í þingsal og afgreiðslu í atkvæðagreiðslu við lok 2. umræðu og vona að það takist að bæta málið frá því sem nú er með þessari breytingu og að það verði til enn þá meira gagns heldur en það stefnir í að verða. En ég ítreka það sem ég sagði í byrjun: Þingflokkur Miðflokksins styður málið eins og það liggur fyrir en telur að það batni með þessum breytingartillögum.